Fókus

Lýsir erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli: „Heyrirðu þetta, Heathrow?“

Mynd

Breski grínistinn John Ryan, sem búsettur er i London í Englandi, var nýlega staddur hér á landi eftir að hafa stigið frá borði skemmtiferðaskipsins Sky Princess á Akureyri þar sem hann skemmti farþegum. Ryan flaug síðan heim til London á sunnudagsmorgni. Hrósar hann Íslendingum fyrir viðbrögð þeirra þegar færiböndin hættu að virka og segir hann að aðrar þjóðir og starfsmenn annarra flugvalla hefðu stressast allverulega í slíkum aðstæðum. 

„Færiböndin á Keflavíkurflugvelli hafa ákveðið að taka smá lúr þennan sunnudagsmorgun og satt að segja myndi slíkt valda algjörri upplausn á flestum öðrum flugvöllum. En hér? Þetta er Ísland. Fólk ypptir bara öxlum, andar djúpt og treystir því að alheimurinn leysi málið,“ 

segir Ryan í færslu sinni á Facebook. Segir hann kostulegt að fylgjast með viðbrögðum ferðamanna, sem eru af ýmsum þjóðernum. Segir hann Heathrow flugvöll, sem er einn sá stærsti og fjölfarnasti í heimi mega læra margt af okkur:

„Það er hreint út sagt kostulegt að fylgjast með viðbrögðum fólks af ýmsum þjóðernum: vanir ferðalangar taka djúpa jóga-öndun, þeir sem verða skelkaðir æfa sig í sprettinum að hliðinu, og Íslendingarnir geisla af „þetta reddast“-viðhorfi eins og um þjóðareiginleika væri að ræða. Óreiða? Ekki í dag. Bara rólegheit, syfjuð færibönd og kennslustund í því hvernig á að halda ró sinni. Þeir seinka jafnvel flugunum til að tryggja að allir komist með. Heyrirðu þetta, Heathrow?“ 

Mynd
Mynd