Fókus

Gítar stolið af rokkstjörnu – Heitir fundarlaunum

Mynd
Wolf er eini upprunalegi meðlimur Accept. Mynd/Getty

Gítar var stolið af þýsku rokkstjörnunni Wolf Hoffmann úr hljómsveitinni Accept eftir tónleika sveitarinnar í Barcelona á Spáni. Hoffmann heitir fundarlaunum fyrir gripinn.

Í tilkynningu hljómsveitarinnar, sem fagnar 50 ára afmæli á þessu ári, segir að gítarnum og fleiri munum hafi verið stolið úr hljómsveitarrútu eftir að sveitin kom fram á tónlistarhátíðinni Barcelona Rockfest núna um helgina.

Mynd

Gítarinn sem um ræðir er einstakur sérhannaður Framus Warwick gítar.

„Þetta er einn af uppáhalds gítörum Wolfs og hann notar hann á hverjum einustu tónleikum,“ segir í tilkynningunni. „Ef einhver hefur upplýsingar um málið, sér gítarinn einhvers staðar til sölu, sér hann hjá veðmangara eða heyrir af því að hann gangi kaupum og sölum á netinu þá biðjum við þann hinn sama að hafa samstundis samband við okkur!“

Accept býður 2000 dollara í fundarlaun eða fyrir upplýsingar sem verða til þess að gítarinn verði fundinn það er á netfangið roadkilltouring@gmail.com. En það jafngildir rúmlega 250 þúsund krónum.

Accept voru ekki þeir einu sem fengu að finna fyrir fingralöngum þjófum á hátíðinni. Landar þeirra í Helloween urðu líka fyrir barðinu á þjófum.

Accept hafa verið starfandi síðan árið 1976 en Wolf Hoffmann er eini upprunalegi meðlimurinn sem eftir er. Hljómsveitin hefur gefið út 17 stúdíóplötur og náði mestum vinsældum snemma á níunda áratugnum.

Þekktustu lög sveitarinnar eru „Balls to the Wall“, „Princess of the Dawn“, „Fast as a Shark“ og „Restless and Wild“.