Harry Bretaprins mistókst hrapalega það markmið sitt að losna undan sviðsljósinu og ágangi fjölmiðla með því að segja sig frá konunglegum skyldum og flytja til Bandaríkjanna. Það hjálpaði lítið að stíga fram í frægu viðtali hjá spjallþáttadrottningunni Oprah, þar sem hann opnaði sig um lífið í konungsfjölskyldunni og ekki bætti það svo úr skák að fylgja viðtalinu eftir með æviminningum, heimildarþáttum á Netflix og frægum málaferlum gegn breskum fjölmiðlum sem og breska ríkinu sem hafði neitað honum um konunglega öryggisgæslu í Bretlandsheimsóknum. Nú má Harry varla hósta án þess að það birtist frétt um það og eins hefur honum tekist að falla í ónáð hjá fjölskyldu sinni, þá einkum hjá eldri bróður sínum, Vilhjálmi Bretaprins.
Harry vonast þó til að sættast við föður sinn, Karl Bretakonung, en það hefur gengið brösulega hingað til. Harry mun snúa aftur til Bretlands í vikunni og hafði faðir hans boðið honum gistingu í Buckingham höll. Harry var þó ekki tilbúinn að þiggja boðið nema að vandlega hugsuðu ráði. Nú segir Daily Mail að Harry hafi tekið sér of langan tíma til að fallast á boðið. Höllin hafi þar með ekki fengið nægan fyrirvara til að undirbúa heimsóknina.
Talsmaður Harry segir í yfirlýsingu að prinsinn sé gífurlega vonsvikinn með þessa niðurstöðu en hann telur að höllin hafi afturkallað boðið á síðustu stundu og þar með sé Bretlandsferðin komin í uppnám.
DailyMail hefur það eftir heimildum sínum að höllin hafi ítrekað gengið á svari frá prinsinum en þrátt fyrir það hafi prinsinn ekki þegið boðið fyrr en skömmu fyrir helgi, en það var talinn of skammur fyrirvari svo hægt væri að tryggja mönnun, öryggi og annað.
Upphaflega stóð til að eiginkona Harrys, Meghan Markle, og börnin þeirra tvö, Archie og Lilibet, kæmu með til Bretlands en nú er ljóst að prinsinn mun ferðast einn til að byrja með og óvíst hvort og þá hvenær Meghan og börnin sláist í för með honum síðar í vikunni. Harry hefur lýst því yfir að hann muni ekki stofna konu sinni og börnum í hættu í Bretlandi, en hann telur lífi þeirra ógnað í ljósi hótana sem fjölskyldunni hafi borist.
Harry er enn ósáttur við að fá ekki konunglega öryggisgæslu í Bretlandi eins og hann naut þegar hann var enn að sinna konunglegum skyldum. Telur Harry sig eiga rétt til sólarhringsgæslu á vegum bresku lögreglunnar en breska ríkið er á öðru máli og telur rétt að prinsinn fái öryggisgæslu eftir þörfum hverju sinni.
Líklegt er talið að Harry muni hitta föður sinn í vikunni en á sama tíma þykir ólíklegt að hann muni hitta bróður sinn, krónprinsinn Vilhjálm, sem er sagður kominn með nóg af yngri bróður sínum og dramanu í honum.
Sean Coughlan hjá BBC lýsir því svo að fréttir um konungsfjölskylduna eigi það til að minna á sápuóperu, sérstaklega þegar Harry kemur við sögu.
„Bróðir gegn bróður. Sonur að leita eftir sáttum við föður. Samkeppni milli svilkvenna. Afi sem vill hitta barnabörn sín. Og núna, munu þau eða munu þau ekki koma hingað?
Við megum reikna með öllum þessum söguþráðum þegar Harry og mögulega eiginkona hans Meghan og börn þeirra, Archie 7 ára og Lilibet 5 ára, snúa aftur til Bretlands í vikunni.“
Coughlan segir marga furða sig á heimsókninni, enda virðist Harry og eiginkona hans nú vera að sækjast eftir konunglegum viðtökum og konunglegum störfum þrátt fyrir að hafa bókstaflega flutt til Bandaríkjanna til að sleppa við slíkt.