Fókus

„Ég er bara kominn með garðslönguöfund“

Mynd
Baldur Rafn og Einar.

Það er fátt sem segir meira um „mid-life“  krísu en þegar ný garðslanga verður tilefni að einlægri öfund. En það er nákvæmlega það sem gerðist í nýjasta þætti Menn eins og við, þar sem þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fara yfir lífið eins og það blasir við körlum sem eru komnir á þann aldur að kunna að meta bæði gott gróðurhús og enn betri garðslöngu.

Tilefnið er nýtt gróðurhús sem hefur risið í garðinum hjá Baldri. En það er ekki gróðurhúsið sem stelur senunni. „Þetta er hrikalega flott. Þú verður eiginlega bara að koma og sjá þetta,“ segir Baldur þegar hann reynir að lýsa nýju „tískugarðslöngunni“ sinni. Einar á erfitt með að fela viðbrögðin. „Uss…“ Og eftir því sem lýsingin heldur áfram kemst hann að niðurstöðu sem fáir hefðu trúað að fullorðinn maður myndi nokkurn tímann segja upphátt: „Ég er bara kominn með slönguöfund.“ Að mati þáttastjórnendanna gæti þetta verið fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi.

Þá rifja þeir félagar upp ferðina á Bergmál þar sem Einar ætlaði sér að vera á undan allri umferð á Þingvelli. Sú áætlun fór ekki alveg samkvæmt áætlun og verður til þess að enn ein saga bætist í safnið af verkefnum sem virtust góð hugmynd á blaði.

Áfall að sjá Just Björn í Skinny Jeans

Tískan fær einnig sinn skerf. Í allan vetur hafa þeir hamrað á þeirri skoðun að skinny jeans séu ekki lengur gjaldgengur klæðnaður fyrir miðaldra menn. Þeir mættu því sjálfir á Bergmál í glænýjum Levi's 501 Loose Fit gallabuxum, sannfærðir um að þeir væru loksins komnir á réttan stað í tískunni. Áfallið varð því talsvert þegar þeir komu auga á Just Björn, Björn Skúlason forsetamaka, sem þeir hafa lengi litið á sem ákveðna fyrirmynd, klæddan í skinny jeans.

Mynd

Ræða af alvöru hluti sem skipta engu máli

Þátturinn kemur einnig við á glæsilegum sextugsafmælistónleikum Stefáns Hilmarssonar, rifjar upp hið goðsagnakennda „18 grýlna“ jakkaævintýri og ræða félagarnir meðal annars barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar. Þar taka þeir félagar mýmörg ráð um framkvæmdir á barnaafmælum.  Eins og venjulega fara þeir Einar og Baldur um víðan völl, ræða af fullri alvöru hluti sem skipta litlu sem engu máli og komast að niðurstöðum sem enginn bað um. En það hefur sjaldan verið skemmtilegra að hlusta á menn ræða garðslöngur, gallabuxur og lífið sjálft.