Fókus

Biður landsmenn að sýna skynsemi gagnvart vítamínum og steinefni - „Megnið af því er drasl“

Mynd
Elísabet Reynisdóttir, Beta Reynis. Mynd: Stefán Jón Ingvarsson

Næringarfræðingurinn Elísabet Reynisdóttir segir að flest vítamín sem eru til sölu á íslenskum markaði séu drasl. Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem Elísabet hvetur landsmenn til gagnrýnnar hugsunar hvað varðar vítamín og steinefni. Flest þessi efni eru seld í hagnaðarskyni og yfirlýsingar um meinta nauðsyn og kosti einkennast fyrst og fremst af sölumennsku.

„Það er ofgnótt af vítamínum á Íslandi sko, megnið af því er drasl“

Elísabet bendir á að vinkona hennar, sem greindist með sjúkdóm, hafi farið í apótek og gengið þaðan út með einhverja fimm eða sex pakka af vítamínum.

„Þetta er líka búð, sölumennska. Þetta er búð sem er að fara að skila hagnaði, skiljið þið, og vill skila hagnaði. Þannig reynum við að vera gagnrýnin, verið líka gagnrýnin á það sem ég segi. Verið gagnrýnin fyrir ykkur, bara hvert og eitt sem er að hlusta. Takið ábyrgð á lífinu eða heilsunni ykkar.“

Elísabet biður jafnan skjólstæðinga sína að sýna sér hvaða vítamín þeir eru að taka inn og oft koma skjólstæðingar til hennar með 10-15 vítamínkrukkur í poka eða dalli en labba út frá henni með aðeins þrjár krukkur, sem eru þá einu krukkurnar sem Elísabet taldi viðkomandi raunverulega hafa not fyrir.

Hún bendir á að stundum sé neysla á vítamínum og steinefnum til þess fallin að raska jafnvægi líkamans, jafnvel hindra eðlilega upptöku líkamans á nauðsynlegum efnum úr fæðunni á borð við magnesíum, járni, sinki og öðru. Steinefni geti stundum verið af hinu góða en ekki þegar fólk er að skella steinefnum út í vatnið oft á dag bara til að fá smá bragð.

Ekki mælir Elísabet heldur með fjölvítamínum og segist sjálf biðja skjólstæðinga um blóðprufur þegar þeir leita til hennar því þannig er hægt að meta hvað viðkomandi hefur raunverulega þörf á. Ekki séu öll vítamín sköpuð jafnt og fólk þurfi ávallt að hafa það í huga að vítamín eru söluvara. Fólki er gjarnan ráðlagt að taka inn endalaust af vítamínum en það gerist sjaldnar að fólk sé varað við því að ofneysla á vítamínum geti verið skaðleg.

„Þetta er ekki alveg svona saklaust eins og við höldum“

Elísabet tekur fram að í sumum tilvikum geti verið gagnlegt að taka inn vítamín, þá einkum D-vítamín, en hún telur skynsamlegt að gera slíkt ekki út í loftið heldur að vandlega hugsuðu máli og af raunverulegri þörf.