Fókus

Taylor Swift og Travis Kelce orðin hjón

Mynd

Tónlistarkonan Taylor Swift, sem hefur sungið um ástina og draum sinn um að ganga í hjónaband árum saman, er loksins gift. Hún og NFL-leikmaðurinn Travis Kelce játuðust hvort öðru í gærkvöldi í Madison Square Garden-íþróttahöllinni í New York.

Það var leikarinn Adam Sandler sem gef hjónin saman og Taylor klæddist kjól frá tískuhúsinu Christian Dior.

Hjónin fögnuðu brúðkaupinu með um þúsund gestum en þeirra á meðal voru stjörnur á borð við Selena Gomez, Miranda Lambert, Ed Sheeran, Karlie Kloss, Gigi Hadid, Bradley Cooper, Dakota Johnson, MGK, Camila Cabello, Benson Boone, Zoe Kravitz, Hugh Grant, Kelsea Ballerini, Ethan Hawke, Suki Waterhouse, Jack Antonoff, Mike Brabel, Erin Andrews, Matthew Stafford, Kyle og Kristen Juszczyk, George og Claire Kittle og margir aðrir.

Travis fór á skeljarnar í ágúst á síðasta ári en þau fóru fyrst að stinga saman nefjum sumarið 2023 eftir að Travis reyndi árangurslaust að gefa tónlistarkonunni símanúmer sitt á tónleikum hennar og barmaði sér svo undan því að þessi tilraun hefði ekki borið árangur í hlaðvarpi sínu. Taylor frétti af hlaðvarpinu og fannst þetta svo rómantískt að ekki varð aftur snúið.