Tónlistarmaðurinn Stefán Berg, einnig þekktur sem Stefán Atli Rúnarsson, hefur sent frá sér nýtt lag sem ber heitið „Keep It Up (In The Club)”. Lagið er kraftmikið klúbbalag með grípandi takti og þéttum dansgólfsbrag, en Stefán ákvað að gera meira en að gefa lagið einfaldlega út, hann bjó einnig til einfaldan danstölvuleik til að kynna það.
Tölvuleikurinn, sem er í léttum retro-stíl, hefur vakið lukku á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem notendur hafa fengið að sjá brot úr leiknum samhliða laginu. Hugmyndin var að skapa skemmtilega og öðruvísi leið til að kynna tónlistina, frekar en að treysta eingöngu á hefðbundna útgáfu og auglýsingar.
„Ég ákvað að gera eitthvað sem væri skemmtilegt, dansvænt og hefði möguleika á að ná flugi utan Íslands,“ segir Stefán. „Lagið er hugsað sem alþjóðlegur klúbbabanger og ég bind töluverðar vonir við að það nái vel út, sérstaklega þar sem ég hef ágætar tengingar inn á stóra Spotify-spilunarlista erlendis.“
„Keep It Up (In The Club)” er nú komið út á öllum helstu streymisveitum.
Einnig er hægt að spila tölvuleikinn hér.
Mælt er með því að spila leikinn í tölvu frekar en í síma, þar sem upplifunin nýtur sín betur á stærri skjá og með lyklaborði.