Fókus

Hjördís 86 ára slær í gegn á TikTok - Sýður sultu og lýsir HM leik fyrir eiginmanninum með tilþrifum

Mynd
Mæðgurnar Hjördís og Berglind á góðum degi á Akureyri.
Mæðgurnar Hjördís og Berglind á góðum degi á Akureyri.

Myndband af Hjördísi Alfreðsdóttur, 86 ára, hefur slegið í gegn á TikTok þar sem nær 19 þúsund hafa horft á hana lýsa leik Hollendinga gegn Svíum á HM þann 20. júní síðastliðinn.

Dóttir þeirra Steina Sævars Þorsteinssonar, Berglind Dagný, tók upp myndbandið og deildi á TikTok og síðar á Facebook, þar sem það hefur einnig slegið í gegn.

„Elsku mamma mín, 86 ára fótboltaséní. Hér er myndband af henni nýbúinni að koma hlaupandi inn í sjónvarpsherbergi til að lýsa leiknum fyrir pabba (87ára) sem sat hin rólegasti og horfði á leikinn í sjónvarpinu, Mamma hafði nefnilega séð leikinn frammi í símanum sínum á meðan hún var að sjóða rabarbarasultu, já af hverju að gera bara eitt í einu? Útsendingin í símanum var greinilega nokkrum sekúndum á undan sjónvarpinu hjá gamla, svo mamma taldi greinilega best að taka lýsinguna bara í sínar hendur.

Pabbi var reyndar með mjög reyndan íþróttafréttamanninn í sjónvarpinu, en mamma hefur sennilega metið stöðuna þannig að hennar lýsing væri bæði hraðari og betri.“ 

@berglinddagny Mamma 86 ára að horfa á HM. var frammi í símanum og sá útsendinguna á undan pabba 87 ára og kom hlaupandi inn til að lýsa leiknum fyrir honum 😂 og hann þarna Cammenbert 👏👏😂😂#íslenskt #iceland #fótbolti #mömmur #fyndið ♬ Judgement - Perfect, so dystopian

 Berglind segir móður sína mikinn fótboltaaðdáandi, halda með Liverpool, horfa helst á alla leiki í ensku og þekkja flesta leikmennina með nafni. 

„Þið heyrið í myndbandinu að hún mismælir sig aðeins og kallar einn leikmanninn Camembert en lagar það svo að sjálfsögðu eins og sannur sérfræðingur Og svo er það smellurinn í lokin þegar markið er komið… hvaðan kom hann eiginlega?“ 

Berglind segir það vera draum móður sinnar að upplifa Liverpool leik á Anfield og Berglind gæti alveg hugsað mér að fara með henni. „Ég kann reyndar ekkert á það hvernig maður nálgast miða á svona leik, en ég ætti nú að geta fundið út úr því fyrir hana mömmu mína.“ 

„Þvílíkur karakter, þessi elska. fótbolti, rabbabarasulta og bein lýsing,  allt á sama tíma. Það gerist ekki mikið betra.

Svona augnablik eru gulls ígildi. Elsku mamma mín, fótboltafréttamaður, sultumeistari og Liverpool kona af lífi og sál, þú ert einfaldlega best og við skulum vinna í því að koma þér út á Anfield.“