Fókus

Katrín hefur þetta að segja um heimsókn Harry og fjölskyldu hans

Mynd
Vilhjálmur, Katrín og Harry

Katrín Middleton hefur reynt að fá eiginmann sinn, Vilhjálm prins, til að hitta bróður sinn, Harry prins,  ásamt eiginkonu hans Meghan Markle, og börnum þeirra Archie prins og Lilibet prinsessu, þegar fjölskyldan mun heimsækja Bretland síðar í þessum mánuði.

„Eins og er ætlar William ekki að hitta þau, en hlutirnir gætu breyst,“ sagði heimildarmaður við Us Weekly á miðvikudag.

„Katrín hefur verið að reyna að sannfæra Vilhjálm um að hitta Harry, Meghan og börnin,“ hélt heimildarmaðurinn áfram og bætti við að prinsessan af Wales hefði einnig „áhuga á að sjá börnin.“

Þar sem ekki hefur gefist „tækifæri til að sjá Archie og Lilibet“ áður, voru fréttirnar af komandi heimsókn þeirra „óvæntar“.  „Þeir eru að reyna að láta þetta virka vegna þess að tækifærin eru svo takmörkuð,“ hélt heimildarmaðurinn fram.

Katrín er sögð vongóð um að Vilhjálmur, „mæti“ en „virði ákvörðun hans“ hvort sem er.

Heimildarmaðurinn fullyrti einnig að verðandi konungur muni aðeins hitta yngri bróður sinn þegar hann er tilbúinn til þess.

„Þetta er ekki á tímalínu Vilhjálms, heldur á tímalínu Harry. Þau bjuggust heldur ekki við að Harry kæmi til Bretlands með Meghan og börnunum, svo hann hefur verið hikandi. Ef hann er ekki tilbúinn núna, þá verður ekki af endurfundi.“

Karl konungur vonast þó til að hitta Harry og Markle og heimildarmenn kalla hann „raunsæjan“ varðandi það að byggja aftur upp sambandið við son sinn. Er Camilla drottning, eiginkona Karls, styðja það að feðgarnir endurbyggi samband sitt.

„Það er greinilega mikil spenna og Karl er líka bjartsýnn á þetta. Hann vonast til að þetta sé fyrsta skrefið í átt að því að bæta sambandið milli Harrys og Vilhjálms.“

Mynd
Feðgarnir Vilhjálmur, Karl og Harry.

Harry prins og Markle  ætla að taka börnin sín með sér til Englands í fyrsta skipti síðan 2022. Harry og Markle munu heimsækja Bretland til að kynna Invictus-leikana árið 2027, sem áætlað er að haldnir verði í Birmingham á næsta ári. Harry prins er sagður vera að „skoða alla möguleika til að reyna að koma“ konu sinni og börnum til Bretlands  „á öruggan hátt og tryggja öryggi þeirra þegar þau eru á jörðinni“. Mun Harry hafa sitt eigið öryggisteymi í för.

Bræðurnir Vilhjálmur og Harry sáust síðast í jarðarför ömmu sinnar,Elísabetar II drottningar, árið 2022. 

Harry og Markle, sem giftu sig árið 2018, létu af konunglegum skyldum sínum árið 2020 og fluttu til Montecito í Kaliforníu, sem olli sundrungu innan fjölskyldunnar.

Daily Mail greindi frá því á miðvikudag að Karl konungur hefði haldið „sjaldgæfan fjölskyldukvöldverð“ í Holyroodhouse-höll í Skotlandi á þriðjudag. Viðstödd voru Camilla drottning, Vilhjálmur prins, Anna prinsessa og Játvarður prins. Háttsettir meðlimir konungsfjölskyldunnar eru nú staddir í Skotlandi til að taka þátt í árlegum hátíðahöldum í tilefni konungsvikunnar. Fjölskyldan gisti yfir nótt í höllinni.