Írskir dagar standa yfir á Akranesi og í gær, þriðjudag, voru Hálandaleikarnir haldnir þar. Fimm keppendur mættu til leiks og kepptu í 7 kg steinkasti, 28 punda lóðkasti, 10 kg sleggjukasti, staurakasti og lóðakasti yfir rá.
Heiðar Geirmundsson, öðru nafni Heisi, sigraði í fjórum keppnisgreinum af fimm og varð efstur á mótinu. Heisi er fyrrverandi atvinnumaður í Hálandaleikunum.
Dagur Fannar Magnússon prestur varð í öðru sæti og Hilmar Örn Jónsson aflraunamaður hreppti í þriðja sætið.
Pálmi Guðfinnsson varð fjórði en sigraði þó í 25 kg lóðkasti og kastaði 18 fet sem er heimsklassa árangur.
Sigurður Hafsteinn Jónsson varð fimmti enda léttastur keppenda og kemur úr CrossFit geiranum.
Kapparnir sýndu flott tilþrif og voru hvattir áfram af fjölda áhorfenda.