Rúmlega tuttugu og fimm gítarleikarar og söngelskir gestir komu saman í Elliðavatnsbæ í Heiðmörk á fyrsta samspilskvöldi Gítarskólans, sem haldið var í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Skógræktarfélag Reykjavíkur í gærkvöldi.
Kvöldið fór fram í einstaklega góðri stemningu og fylltist húsið af gítarleik og söng. Á dagskránni voru um tuttugu íslensk og erlend lög sem þátttakendur spiluðu og sungu saman, óháð aldri eða reynslu. Markmiðið var ekki fullkominn flutningur heldur að njóta tónlistarinnar, kynnast öðru gítarfólki og eiga saman notalega kvöldstund.
„Ég hef lengi gengið með þá hugmynd að safna gítarfólki saman úti í náttúrunni og spila saman. Viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum og það var virkilega gaman að sjá hús fullt af fólki sem hafði einfaldlega gaman af því að spila og syngja saman,“ segir Bent Marinósson, gítarkennari og stofnandi Gítarskólans.
Samspilið er hluti af uppbyggingu Tónsmiðjunnar, samfélags gítarleikara sem leggur áherslu á reglulega spilamennsku, samveru og spilagleði. Aðstandendur stefna að því að halda fleiri sambærileg samspilskvöld á komandi misserum þar sem tónlist og útivist fara saman.
Myndir frá kvöldinu sýna vel þá einstöku stemningu sem skapaðist þegar nær þrjátíu manns komu saman með gítarana sína og fylltu Elliðavatnsbæ af tónlist.