Þessar vikurnar stendur gullregn í blóma í görðum hér á Höfuðborgarsvæðinu. Í hugum margra er gullregn fallegasta tréð sem fyrirfinnst í görðum landsmanna. Gullregn (Laburnum) hefur lengi verið ræktað hér á landi og þykir hið glæsilegasta garðtré með sínum ótal gulu blómklösum.
Á alfræðivefnum Wikipedia segir að plantan sé af ættkvísl lítilla eða meðalstórra trjáa af ertublómaætt og beri gul blóm í löngum hangandi klösum. Segir þar jafnframt að gullregn skiptist í tvær tegundir, strandagullregn (Laburnum anagyroides) og fjallagullregn (Laburnum alpinum). Um uppruna gullregns segir að plantan sé upprunnin úr fjallasvæðum í suðurhluta Evrópu frá Frakklandi til Balkanskagans.
Gullregn er garðtré og vanalegt að í görðum sé ræktað garðagullregn sem er blendingsgullregn og sameingar helstu kosti beggja tegunda. Hefur langa blómklasa eins og fjallagullregn og þétt blómskrúð með stórum blómum eins og strandagullregn. Blendingsyrkið garðagullregn er talið upprunnið í Hollandi á síðari hluta 19. aldar. Það þykir góð planta til að hafa í görðum og blómstrar mjög fljótt eftir gróðursetningu.
Plantan er sannkölluð garðaprýði og geta fagurgerðir blómklasarnir orð allt að hálfur metri að lengd. Þá er talið til kosta hennar að hún myndar sjaldan fræ.
Eitrunaráhrif gullregns
En sjaldan er rós án þyrna og það má yfirfæra á garðagullregnið. Vissulega þroskar það síður fræ en fjallagullregn en fræin eru eitruð sem og allir aðrir hlutar plöntunnar. Aðaleiturefnið í gullregni nefnist Cytisine. Í fræbelgnum eru 3 til 5 fræ en 2 - 10 fræ geta valdið eitrun hjá börnum. Einkenni geta komið í ljós eftir 10 til 60 mínútur. Eitrunin veldur ógleði, uppköstum, niðurgangi, svima, höfuðverk, útvíkkuðum sjáöldrum og hækkuðum blóðþrýstingi.
Eins og oft er með eitranir er börnum hættara við þeim auk þess sem fullorðnir eru ólíklegri til að leggja sér hluta gullregns til munns. Því þarf að bera virðingu fyrir þessari fallegu plöntu og brýna fyrir börnum að fræ og aðrir plöntuhlutar hennar séu eitruð. Það ætti þó ekki að hindra fólk í að gróðursetja í garða sína þessa fallegu plöntu en gróðursetningarstaðinn þarf að vanda vel. Hún endurgeldur varúðina margfalt með fegurð sinni þegar hún blómstrar.