Taylor Sheridan, höfundur sjónvarpsþáttanna Yellowstone, tjáði sig um brotthvarf aðalleikarans Kevins Costners úr þáttunum, nokkrum árum eftir að sögusagnir um deilur þeirra á bak við tjöldin gengu yfir.
Í hlaðvarpi Bill Simmons á sunnudag fullyrti Sheridan að Costner hefði upphaflega átt að „vera bara í fyrstu þremur þáttaröðunum“.
„Það var í samningi hans. Í mínum huga er það þá sem yngsti sonur hans tekur við í þættinum. En sjónvarpsstöðin var svo hrædd við að Kevin yrði ekki með lengur, jafnvel þótt Kevin væri tilbúinn,“ útskýrði hann. „Hann var tilbúinn að fara. Hann hafði annað sem hann vildi gera, en hann hélt áfram í tvær þáttaraðir í viðbót.“
Costner hélt áfram að leika í þáttunum vegna þess að þeir voru vinsælir.
„Þetta var svo mikill hittari. Hugmyndin um að gefast upp á vinsælli þáttaröð áður en hún klárast er mjög framandi fyrir sjónvarpsstöð. Það var jafnvel þrýstingur frá sumum kapalsjónvarpsfyrirtækjunum sem vildu setja það í samninga sína að þau ætluðu að fá X-fjölda þáttaraða af Yellowstone. Það er krafturinn í mjög vinsælum þáttum.“
En að lokum ákvað Costner að hann þyrfti að „fara að gera sitt eigið“.
Þættirnir sem sýndir voru frá 2018 til 2024, fylgdi eftir valdamiklum búgarðseiganda/stjórnmálamanni frá Montana, John Dutton (Costner), og fjölskyldu hans, þar á meðal Beth (Kelly Reilly), Rip (Cole Hauser), Kayce (Luke Grimes) og Jamie (Wes Bentley). Eins og aðdáendur kannski muna var persóna Costners myrt í síðustu þáttaröðinni sem hófst árið 2024 og var það samkvæmt sögusögnum vegna deilna milli hans og Sheridan.
Árið 2023 lýsti Sheridan því yfir að hann hefði verið „vonsvikinn“ með brotthvarf Costners og játaði að það hefði verið Costner sem þrýsti á að hann yfirgæfi vinsælu þáttaröðina.
„Að Costner hætti styttir lokaútgáfu persónunnar hans. Það breytir henni ekki, en það styttir hana,“ sagði hann við Hollywood Reporter á þeim tíma. „Síðasta samtal mitt við Kevin var að hann hefði þetta ástríðufulla verkefni sem hann vildi leikstýra,“ sagði Sheridan. „Hann og sjónvarpsstöðin voru að rífast um hvenær hann gæti verið búinn með Yellowstone. Ég sagði: „Við getum örugglega unnið að áætlun sem miðar að æskilegu brotthvarfi hans,“ sem við gerðum. Sköpun hans á John Dutton er táknræn og öflug ... og ég hef aldrei lent í vandræðum með Kevin sem við gátum ekki leyst,“ sagði Sheridan.
„En þegar lögfræðingar blanda sér í málið, þá fá menn ekki að tala saman og byrja að segja hluti sem eru ekki sannir og reyna að færa sökina á aðra út frá því hvernig fjölmiðlar eða almenningur virðast bregðast við. Hann tók mikið af þessu á sig og ég veit ekki hvort nokkur eigi það skilið. Kvikmynd hans virtist vera honum mjög mikilvæg og hann vildi færa fókusinn.“
Árið eftir gaf Costner út myndina Horizon: An American Saga.