Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins sex ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“, en síðan hafa liðið tuttugu ár og stúlkan er nú orðin fullorðin kona sem gifti sig á dögunum.
Thylane er dóttir franska fótboltamannsins Patrick Blondeau og frönsku fjölmiðlakonunnar Veronika Loubry. Thylane byrjaði að sitja fyrir fimm ára gömul og vakti snemma athygli fyrir fegurð sína. Hún vakti svo heimsathygli þegar hún sat sex ára gömul fyrir franska tímaritið Vogue Enfants árið 2006. Þetta var upphafið að farsælum ferli en Thylane hefur gengið vel í fyrirsætubransanum. Það vakti svo gríðarlega athygli þegar Thylane var ein yngsta stúlkan til að sitja fyrir í Vogue, það er tímaritinu sjálfu en ekki barnaútgáfunni, en hún var þá aðeins 10 ára gömul og þótti mörgum óviðeigandi hvernig hún var þar klædd og hvernig henni var stillt upp eins og fullorðinni fyrirsætu.
Á mánudaginn gekk hún að eiga unnusta sinn, franska leikarann Ben Attal, en hjónin opinberuðu trúlofun sína í mars á þessu ári.