Ekki hafa margir heyrt um Netflix-þættina Conquest sem fyrst áttu að heita White horse, enda hafa þeir aldrei verið sýndir þrátt fyrir að streymisveitan Netflix hafi eytt milljörðum í verkefnið. Varð streymisveitunni á þau mistök að gefa leikstjóranum, Carl Erik Rinsch, lausan tauminn með fjárveitingu verkefnisins en leikstjórinn hefur nú verið dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir fjármálamisferli.
Verkefnið þótti mjög spennandi þar sem þættirnir áttu að fjalla um átök mennsku og gervigreindar. Hugmyndin hafði heillað Hollywood upp úr skónum og slógust risarnir á markaði streymisveitna um verkefnið. Það var loks Netflix sem bar sigur úr býtum og ákvað að verja um tugum milljóna dala í þennan spennandi vísindaskáldskap. Netflix ákvað jafnframt að gera nokkuð sem ekki hafði áður verið reynt – að leyfa Rinch að stýra ferðinni og peningunum.
Framleiðslan var metnaðarfull og fóru tökur fram í þremur löndum. Engu að síður skilaði sér ekki einn einasti fullbúni þáttur til Netflix enda hafði Rinsch eytt miklu af fjármagninu í tóma vitleysu á borð við rándýrar sænskar rúmdýnur, lúxusbifreiðar, rafmynt og antík. Eins ákvað hann að nýta peningana til að borga skilnaðarlögmanni sínum en eðli máls samkvæmt hafði skilnaður hans ekkert með framleiðslu þáttanna að gera.
Rinsch hefur nú verið sakfelldur fyrir fjársvik, enda þótti ljóst að um 11 milljónir dala, sem áttu að renna til þáttanna, runnu þess í stað í vasa leikstjórans. Allt í allt eyddi Netflix um 55 milljónum dala í þættina, sem jafngildir rúmum 7 milljörðum króna.
Þegar refsing leikstjórans var kveðin upp á mánudaginn sagði Rinsch við fjölmiðla að hann myndi nú ráðast í djúpa naflaskoðun.
„Þetta mál hefur þvingað mig til að horfast í augu við hluti sem varða heilsu mína, dómgreind og líf,“ en leikstjórinn vill meina að andleg veikindi sem og lyfjafíkn hafi haft áhrif á dómgreind hans með áðurnefndum afleiðingum. Hann hefur beðist afsökunar á framferði sínu og gengist við því að hafa valdið streymisveitunni raunverulegu tjóni.
Dómarinn í málinu sagði að þó að andleg veikindi gætu skýrt hegðun leikstjórans að vissu marki þá afsaki það ekki brot hans sem hafi verið unnin af ásetningi. Leikstjórinn hafi svikið fé úr Netflix og logið til að reyna að hylma yfir brot sín.
Saksóknarinn í málinu fagnaði niðurstöðunni sem hann segir senda skýr skilaboð: „Svik verða ekki umborin“