Leikkonan Olivia Wilde var lögð í einelti í æsku fyrir sitt raunverulega eftirnafn – Cockburn – og ákvað því að taka upp eftirnafnið Wilde þegar hún gerðist leikkona. Hún lýsir því í hlaðvarpinu Armchair Expert að fáir átti sig á því hvernig eftirnafnið Cockburn, sem kemur frá Skotlandi, er borið fram.
„Það er borið fram Coburn (Kóbörn),“ sagði leikkonan við þáttastjórnandann Dax Shepard í þættinum sem fór í loftið á mánudaginn. Margir bera eftirnafnið fram eins og það er skrifað, þ.e. að það sé samsetning af ensku orðunum fyrir getnaðarlim og fyrir bruna, eða typpabruni.
„Mér finnst þetta mikilvægt – við ættum öll að gefa börnum okkar hræðileg millinöfn bara svo þau geti alist upp við eitthvað sem er hægt að leggja þau í einelti fyrir,“ sagði leikkonan í gríni. Hún segist sjálf hafa orðið fyrir aðkasti fyrir eftirnafnið en telur að það hafi verið mikilvægt fyrir hana að læra að hlæja með eineltishrellunum.
„Mér fannst þetta líka fyndið. Ég var bara: Ó, ég fatta þetta.“
Hún valdi sér eftirnafnið Wilde þegar hún lauk skyldunámi en nafnið er heiðursvottur til skáldsins fræga Oscar Wilde. Eins hefur hún áður bent á að það sé viss hefð í fjölskyldu hennar, þar sem má finna þó nokkur skáld, að taka sér upp dulnefni.
„Ég á afa sem breytti nafninu sínu í James Helvick til að skrifa bókina Beat the Devil sem seinna var gerð mynd eftir með Homphrey Bogart í aðalhlutverki. Mér fannst alltaf mjög rómantískt að vera með dulnefni og mig óraði ekki fyrir því að fólk myndi líta á nafnið sem kynþokkafullt, eins og vá, hún er svo villt [e. wild].“
Móðir leikkonunnar er Leslie Cockburn sem er verðlaunarannsóknarblaðamaður, heimildarmyndagerðarkona og höfundur sem hefur starfað við vinsælu fréttaskýringaþættina 60 Minutes. Faðir leikkonunnar, Andrew Cockburn, er breskur blaðamaður, rithöfundur og ritstjóri sem hefur gert heimildarmyndir fyrir PBS.
Föðurafi leikkonunnar sem og þó nokkrir frændur og frænkur eru eins rithöfundar og blaðamenn.