Lögmaðurinn Arnar Þór Jónsson furðar sig á því að áhrifavaldurinn Patrekur Jamie sé að fjalla um Evrópusambandið á RÚV, Patrekur viti ekki einu sinni að Lichtenstein sé á evrópska efnahagssvæðinu.
Patrekur er annar þáttastjórnandi í þættinum Sama viðtalið um ESB þar sem hann og Baldvin Þór Bergsson fá til sín sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið. Á vef RÚV segir að von sé um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst um hvort það eigi að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Arnar Þór hefur marga fjöruna sopið síðustu árin, hann var dómari við héraðsdóm, síðar varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hann fór í forsetaframboð og stofnaði svo Lýðræðisflokkinn. Arnar Þór segir í færslu á Facebook að hann hafi forðast fréttatíma RÚV í mörg ár en horfir nú daglega á RÚV vegna HM í knattspyrnu.
Arnar Þór segir í færslu á X að þegar hann var á vef RÚV að horfa á fótbolta hafi hann rekist á annað efni.
„En þar sem leikirnir hafa fæstir verið spennandi hingað til þá "skrolla" ég stundum eins og unglingarnir, með annað augað á símanum. Þar poppa m.a. upp klippur frá RÚV, þar sem Patrekur Jamie tekur að sér að "upplýsa" áhorfendur um ESB með viðtölum við sérvalda sérfræðinga. Þar sem Patrekur veit augljóslega ekkert um málefnið og vissi m.a. ekki að Lichtenstein væri í EES (né að Lichtenstein væri yfirhöfuð til), þá virka viðmælendurnir alvitrir, líkt og verið væri að fá Ancellotti eða Tuchel í "fótboltasettið".“
Hann setur spurningamerki við þetta. „Hvað segir þetta okkur um forgangsröðun RÚV? 5 manna sérfræðiteymi er ráðið til að sinna a.m.k. 6 klst útsendingu á dag vegna boltasparks annarra þjóða, sem álls engin áhrif hefur á íslenska hagsmuni, en ræður algjörlega óupplýstan þáttastjórnanda til að fjalla um ESB í aðdraganda mikilvægrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, sem skipt gæti sköpum um framtíð lands og þjóðar.“
Leggur hann fram hugmynd: „Hvernig væri að víxla þessu og leyfa bernskum einstaklingum að fræða sig og aðra um hve margir séu inn á fótboltavellinum og um aukaspyrnur, rangstöðu o.s.frv., en ráða 5 manna sérfræðingateymi, með mismunandi sýn og reynslu, til að fjalla um ESB, EES og Ísland í aðdraganda kosninganna 29.8. nk.?“