Sundruð (e. Hold it Together), teiknuð stuttmynd með Halldóru Geirharðsdóttur og Grace Seri í aðalhlutverkum, hlaut sérstök verðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Annecy International Animation festival í Frakklandi. Sundruð fékk þar André Martin-verðlaunin, sem veitt eru bestu stuttmyndinni af öllum myndum sem keppa á hátíðinni.
Greint er frá á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Fan Sisskoko er leikstjóri myndarinnar og framleiðandi er Heather Millard frá Compass Films. Sundruð er framleidd á Íslandi og Frakklandi, í samframleiðslu með Belgíu. Annecy er ein stærsta teiknimyndahátíð sem haldin er í heiminum.
Myndin fjallar um Neema, ungan innflytjanda á Íslandi. Hún upplifir í sínum vikulegu sundferðum röð óvæntra umbreytinga sem koma í veg fyrir að hún geti tengst fólkinu í kringum sig. Á meðan hún á í erfiðleikum með að jarðtengja sig hjálpa óvænt tengsl henni að sigrast á einmanaleika og sorg.
Fan Sissoko veitti verðlaununum viðtöku í Annecy. „Mér hefði aldrei órað fyrir því að vera með kvikmynd í Annecy, hvað þá að fá verðlaun fyrir hana, svo þetta er sannur heiður! Ég er ánægð að saga innflytjanda á Íslandi snerti fólk erlendis og ég vona að þessi verðlaun geri mér kleift að gera fleiri kvikmyndir.”
Sundruð (Hold it Together) er teiknuð stuttmynd í leikstjórn og eftir handriti Fan Sissoko. Aðalhlutverk eru í höndum Halldóru Geirharðsdóttur, Grace Seri og Yves-Marina Gnahoua. Framleiðendur eru Heather Millard hjá Compass Films á Íslandi og Stéphanie Launay hjá Komawé í Frakklandi, með Julien Melebeck sem meðframleiðanda og Þórð Jónsson sem yfirframleiðanda. Stjórn teikningar annaðist Raphaelle Prud'Homme, tónlist samdi Hafdís Bjarnadóttir og hljóðhönnun var í höndum Ingrid Simon.
Myndin er framleidd af Compass Films á Íslandi og Komawé í Frakklandi, í samframleiðslu við belgíska fyrirtækið Artémis Productions. Alþjóðleg sala og dreifing er í höndum SUDU Connexion. Sundruð var styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands auk CNC, Fédération Wallonie-Bruxelles, Creative Europe MEDIA, félags- og húsnæðismálaráðuneyti Íslands, Procirep, Angoa, Tax Shelter Belgium og samfélagsstyrkjum Landsbankans.