„Að sjá barnið sitt í fyrsta sinn í jafningjahópi er besta tilfinning sem ég hef nokkru sinni upplifað,“ segir María Tinna Árnadóttir, móðir Antons Everts, fatlaðs körfuknattleiksmanns, sem tók nýlega þátt í mótinu Olympics 3X3 FIBA Open, sem fór fram í Sviss 20.-21. júní 2026.
Anton hefur verið félagslega einangraður vegna tíðra flogakasta en hann er með sjaldgæft heilkenni sem kallast Lennox Gastaut Syndrome. Anton fann sig ekki í íþróttaiðkun, þrátt fyrir margar tilraunir, fyrr en hann fór að æfa með Haukum Special Olympics, þar sem hann hefur virkilega notið sín.
„Það eiga allir rétt á að stunda íþróttir á jafningjagrundvelli og það er svo góð tilfinning sem maður finnur sem foreldri þegar barninu manns er tekið eins vel og hér. Ég get ekki þakkað þessu flotta starfi nóg hvað það hefur gert fyrir okkar fjölskyldu,“ segir María í viðtali við tímaritið HVATA, sjá nánar hér.