Fókus

Katrín lauk Þriggja tinda þrekáskorun - Safnar fyrir góðan málstað

Mynd
Katrín hertogaynja Mynd: Getty

Prinsessan af Wales, Kate Middleton, lauk afar krefjandi gönguferð um helgina til að safna peningum fyrir krabbameinsmeðferð.

Katrín deildi mynd af sér að taka þátt í Þriggja tinda áskoruninni á sunnudaginn, 24 tíma þrekkeppni sem felur í sér að klífa hæstu tinda Skotlands, Englands og Wales. Katrín kleif með góðum árangri Ben Nevis í Skotlandi, Scafell Pike í Englandi og Yr Wyddfa (Snowdon) í Wales. Gönguferðin nær yfir 23 mílur (rúmir 37 km) og er 10.052 fet (um 3000 metrar) á hæð, oft í slæmu veðri og myrkri.

Katrín brosti breitt á myndinni sem hún birti á X þrátt fyrir erfiða líkamlega áreynslu, klædd í hafnaboltahatt og svartan jakka berandi göngufatnað á bakinu.

Mynd

Hún skrifaði einnig hjartnæma athugasemd um hvaða áhrif krabbameinið hefur haft á hana. Katrín greindist með krabbamein í mars 2024 , lauk lyfjameðferð og hefur verið í bata frá janúar 2025.

„Krabbamein hefur ekki bara áhrif á líkamann. Það breytir hugsun og tilfinningum og hefur djúpstæð áhrif á alla þætti lífsins,“ skrifaði hún. „Ég þekki þetta persónulega og að ferðalagið í gegnum og eftir meðferð krefst meira en lyfja eingöngu. Ég hef tekið að mér Þriggja tinda áskorunina, ekki bara sem líkamlega áskorun heldur sem tækifæri til að kanna lífið handan greiningar og gefa eitthvað til baka“. 

Katrín sagðist takast á við áskorunina til að vekja athygli á „dýpri áhrifum alvarlegra sjúkdóma og mikilvægi heildrænnar heilbrigðisþjónustu.“

„Þessi áskorun mun styðja við Royal Marsden Cancer Charity og hjálpa til við að umbreyta aðgengi að og skilningi á heildrænni umönnun sem mun auka bata og lækningu sjúklinga um allt Bretland“.

Middleton sendi einnig stuðningsskilaboð til þeirra sem glíma við krabbamein.

„Hugrekki snýst ekki bara um að halda áfram. Það snýst um að vita hvernig á að halda sér jarðtengdum og vera til staðar, sama hvaða breytingar þú ert að ganga í gegnum,“ skrifaði hún. „Saman getum við staðið við hlið allra þeirra sem lifa lífinu með krabbameini og tryggt að enginn horfist í augu við þennan sjúkdóm án þess að vera séður eða án stuðnings. Vinsamlegast vitið að þið eruð ekki ein.“

Samkvæmt Royal Marsden Cancer Charity munu framlög sem Katrín safnar renna til þróunar nýrrar miðstöðvar fyrir heildræna vellíðan og bata, sem og til að skapa sérhæft verkefni til að „umbreyta aðgengi að heildrænni umönnun, samhliða klínískri meðferð“ fyrir sjúklinga um allt Bretland til að efla bata þeirra.