Fókus

Guðni sneri algjörlega við blaðinu sem ungur maður: ,,Ég kem úr umhverfi þar sem voru bæði mikil veikindi og neysla”

Mynd
Guðni Gunnarsson. Mynd/Heiða

Guðni Gunnarsson, frumkvöðull og stofnandi Rope Yoga segist sjá sífellt fleiri Íslendinga snúa við blaðinu þegar kemur að því að taka fulla ábyrgð og gera róttækar breytingar á lífi sínu. Guðni, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir samfélagið okkar nánast vera að kafna úr efnishyggju og neyslu, en sem betur fer virki hlutirnir þannig að þegar eitthvað fer nógu langt í öfgar komi raunverulegt tækifæri til breytinga:

,,Ef við skiljum það að allt sem þú veitir athygli vex og dafnar getum við ákveðið hvort við séum fórnarlömb eða skaparar í eigin lífi. Það að halda að maður sé bara leiksoppur í höndum annarra og að lífið sé ósanngjarnt er ekki farsæl leið til að lifa lífinu. Ef við skoðum skammtafræðina, þá kemur í ljós að það er bara núna. Það er allt að gerast á sama tíma. Ef að viðhorfið er að allt sem er akkúrat núna sé það besta breytist mjög margt og þá áttum við okkur á að við erum sjálf að túlka augnablikið út frá okkur sjálfum og okkar viðhorfum. Við erum alltaf að bíða eftir einhverjum augnablikum þar sem allt á að breytast. Það er verið að hengja sig á eitthvað í framtíðinni þegar allt á að gerast. En spurningin er eftir hverju erum við að bíða? Hvaða augnablik verður til þess að við verðum loksins tilbúin að vera þakklát, vera til staðar og vera fullir þátttakendur í okkar eigin lífi. Þegar við erum föst í að horfa á eitthvað „þegar“ í framtíðinni þar sem allt á að breytast, þá erum við í raun að búa til nýja fjarveru og halda föst í sömu mynstrin. Síðan bíður þú bara og bíður og áttar þig ekki á því að þú ert í raun að bíða eftir sjálfum þér og að þín sál mæti loksins.“ 

Guðni segist finna mikinn hraða, streitu og þjáningu í íslensku samfélagi. Það jákvæða við það sé að fólk þurfi yfirleitt að rekast á botninn til að eitthvað breytist í raun og veru:

„Það er mjög mikil þreyta og neysla í samfélaginu okkar. Í raun er samfélagið okkar á ákveðinn hátt að kafna úr efnishyggju, neyslu, sjúkdómum og alls kyns fíknum. Við leitum stöðugt að hlutum fyrir utan okkur til að fylla upp í tómið. Við erum ekki komin alla leið á endastöð í þessari þróun, en staðan er orðin sú að það eru alltaf fleiri og fleiri að snúa við blaðinu. Þegar þrýstingurinn af því sem er hætt að virka verður nógu mikill neyðist fólk til að leita inn á við. Stór hluti fólks er að afneita sjálfum sér stóran hluta dagsins. Við erum oft eins og fló á skinni og höldum að við séum hugsanir okkar. Það veldur því svo að það er ekki gott að vera í eigin návist og maður verður friðlaus. Bara með því að varpa ljósi á þessa hluti byrja þeir smám saman að losna. Stærsta vandamál okkar flestra er viðnámið sem við veitum þjáningunni og þannig verður til kvíði. Með því að hafna því sem er búum við til viðnám og viðnámið er yfirleitt miklu stærra vandamál en það sem við erum að hafna.” 

Það er ekki tilviljun að Guðni fór ungur að aldri að vinna við heilsu og hafa áhuga á því að finna innri ró og jafnvægi. Hann rak sig sjálfur á alls kyns veggi þegar hann var yngri: 

„Ég kem úr umhverfi þar sem voru bæði mikil veikindi og neysla. Báðir foreldrar mínir þjáðust og ég fór sjálfur mjög ungur í neyslu og bæði reykti og drakk strax snemma á unglingsaldri. Það var mikið kapp í mér, sem var bæði kostur og galli, en ég áttaði mig fljótt á því að ég væri svo ástríðufullur og kappsamur í öllu sem ég gerði að ef ég næði ekki tökum á þessu myndi ég valda mér og öðrum skaða. Það kom tímapunktur þar sem ég vissi að ég yrði að velja og ég hef hugsað mikið um allar tegundir heilsu alveg síðan. Ég hef farið inn í flesta kima heilsubransans, en eftir öll þessi ár nýt ég þess að vera núna með skjólstæðinga sem vilja taka ábyrgð. Fólkið sem kemur til mín núna er komið á þann stað að vera tilbúið að taka ábyrgð og það er blessun að vinna með fólki sem er á þeim stað.

Guðni er talsvert róttækur í allri sinni nálgun og hann segir að eina leiðin til raunverulegra framfara sé að stíga út úr fórnarlambinu og verða algjörlega valfær og ábyrgur í eigin lífi:„Þegar fólk vaknar í alvöru til vitundar og sér að eitthvað sem einu sinni virkaði er löngu hætt að virka, er næsta skref að taka fulla ábyrgð á því og gera breytingar. Flestir ná ekki að horfast í augu við þennan stað fyrr en þeir eru komnir á botninn. Þess vegna verða oft mestu breytingarnar þegar fólk er komið þangað. Þá opnast fyrir auðmýkt og vilja til að breyta öllum viðhorfum og þá gerast oft magnaðir hlutir. Við höfum flest lent á þessum stað þar sem eitthvað verður að breytast og maður er raunverulega tilbúinn. Í tilverunni er aðallögmálið orsök og afleiðing og það uppskera allir eins og þeir sá.”

Hægt er að nálgast viðtalið við Guðna og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is