Fókus

Fólkið sem börnin kalla gulu hetjurnar sínar

Mynd

Nýjustu gestir hlaðvarpsins 4. vaktin eru Steffy Þórólfs sem er hluti af Team Rynkeby hjólahópnum núna í ár og Louisa Sif sem hefur tvisvar sinnum verið þátttakandi með liðinu. Þáttasjórnendur 4. vaktarinnar eru Lóa Ólafsdóttir og Sara Rós Kristinsdóttir og fjallar hlaðvarpið í víðu samhengi um málefni langveikra og fatlaðra barna og fjölskyldur þeirra. Hægt er að hlusta á þættina á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Mynd

Team Rynkeby er góðgerðarverkefni sem hófst í Danmörku árið 2002 þegar nokkrir starfsmenn danska safaframleiðandans Rynkeby Foods ákváðu að hjóla frá Danmörku til Parísar til að sjá lokadag Tour de France. Fyrirtækið var aðalstyrktaraðili ferðarinnar það árið en einnig fengust styrkir frá öðrum fyrirtækjum. Það gekk vonum framan að að safna styrkjum, það vel að það varð afgangur og var hann gefinn deild krabbameinssjúkra barna á háskólasjúkrahúsinu í Odense. 

Team Rynkeby hefur stækkað síðan þá og í ár eiga samtökin 25 ára afmæli. Þátttakendur hjólaárið 2025-2026 eru um 2500 hjólarar og um 500 aðstoðarfólk í 68 liðum frá níu löndum auk Evrópuliðs. Ísland hefur tekið þátt frá árinu 2017 og er þetta því 10. tímabilið. Stór hluti af styrknum sem íslenski hópurinn safnar rennur í rannsóknasjóð Umhyggju, sem eru regnhlífasamtök langveikra barna sem vinna að bættum hag barna með umfangsmiklar stuðningsþarfir og fjölskyldna þeirra. Hluti styrksins er til dæmis nýttur í að veita fjölskyldum langveikra barna fría sálfræði- og lögfræðiþjónustu og aðra þá þjónustu sem Umhyggja veitir langveikum börnum og fjölskyldum þeirra. Innan Umhyggju starfa 19 félög og samtök. 

Mynd

Íslenska liðið samanstendur í ár af 23 hjólurum og sex manna aðstoðarhópi eða umhyggjuliðum sem huga að öllu fyrir hjólarana og að utanumhaldi í ferðinni.  Steffy og Louisa nefna það báðar í þættinum að án umhyggjuliðanna kæmist liðið ekki langt en það eru alltaf fjórir bílar sem fylgja hópnum og sjá um að hafa mat og drykki tilbúið og eins ef eitthvað kemur upp á. Liðið fer með meirihlutann af matnum til Danmerkur og eru það fyrirtæki hér heima sem hafa gefið liðinu þær vörur. Íslenska liðið flýgur til Kaupmannahafnar 3. júlí og hjólar af stað 4. júlí frá Kolding í Danmörku til Parísar. Ummhyggjuliðar fylgja hópnum á bílum og eru þeim innan handar alla ferðina. Lagt er upp með að allir í liðinu hjóli alla leið, en ferðin er um 1300 km og tekur átta daga.

 Til að geta tekið þátt þá er eitt af skilyrðum að liðsmenn hjóli á eins hjólum og klæðist eins hjólafatnaði. Einkennislitur Team Rynkeby er gulur og hjóla allir liðsmenn á gulum hjólum og í gulum fatnaði. Hjólin er hægt að nýta á milli ára en fatnaðurinn endurnýjast ár hvert þar sem styrktaraðilar breytast frá ári til árs. Þau fyrirtæki sem styrkja fyrir að lágmarki 400.000 kr. fá merki fyrirtækisins á fatnaðinn. Liðsmenn greiða sjálfir allan kostnað vegna þátttöku sinnar, þar á meðal fyrir hjól, búnað, ferðir, fatnað, gistingu og fleira. Sú hefð hefur skapast að liðsmenn skipti á treyjum sínum þegar þegar öll liðin koma saman í garðinum í París á lokadegi ferðarinnar.  Steffy er að taka þátt í fyrsta skipti í ár og hefur markvisst æft sig síðasta ár til að geta tekið þátt í samhjólinu. Steffy er með opna samfélagsmiðla og þar deilir hún ýmsu frá sínu daglega lífi og hefur meðal annars sýnt frá æfingum hjá liðinu og mun deila frá ferðinni sjálfri. Það er einnig hægt að fylgja sjálfu liðinu á samfélagsmiðlum undir nafninu Team Rynkeby Ísland. 

Mynd

 Louisa hefur tekið þátt tvisvar sinnum áður ásamt eiginmanni sínum, Lárusi, en tekur ekki þátt í ár. Team Rynkeby á einstakan stað í hjarta hennar þar sem þau stóðu fyrir utan spítalann á tímum COVID egar samhjólið var á Íslandi það árið. Þá var dóttir Louisu í krabbameinsmeðferð og Lárus segir við hana að gaman væri að vera hluti af þessu verkefni einn daginn. Þetta voru orð sem þau stóðu bæði við og gott betur en það enda tóku þau bæði þátt oftar en einu sinni. Louisa er iðjuþjálfi og starfar í Ljósinu sem er endurhæfing fyrir krabbameinsgreinda. Þar að auki þá býður hún foreldrum langveikra barna viðtöl á vegum Umhyggju og er með stuðningshóp fyrir mæður sem eru með börn í krabbameinsmeðferð á vegum styrktarfélagsins  - Börn með krabbamein.  „Það er einn dagur sem er extra erfiður, það er mjög brött brekka þarna“, segir Louisa og nefnir að þetta sé fræg brekka, Mur de Huy, sem er oft notuð i hjólakeppnum og er gömul Tour de france hjólaleið. Þá talar hún um að daginn fyrir þá brekku, fái allir hjólarar bréf frá langveiku barni sem Umhyggja hefur biðlað til foreldra langveikra barna að skrifa til hjólara fyrir ferðina.  „Ég hef áður sjálf skrifað svona bréf, þegar við vorum í þessu ferli með dóttur okkar, þá var ég beðin um að skrifa svona bréf til hjólara og samstarfskona mín fékk það bréf sem var þá í liðinu“, rifjar hún upp. Það er auðvelt að hrífast með þessu flotta framtaki og verkefni sem fólk er tilbúið að taka sér fyrir hendur fyrir gott málefni. Það var síðan í lok viðtalsins þegar Sara spyr hvort þær vilji segja eitthvað að lokum og bætir Steffy við: „Það sem mér finnst mjög skemmtilegt að komi fram er að börnin kalla okkur gulu hetjurnar.“ Það getur varla verið nokkuð betra en að fá að tilheyra þeim hópi sem eru gulu hetjurnar og leggja sitt af mörkum til að bæta mögulega lífsgæði og hag langveikra barna með að styrkja rannsóknir í þeim málaflokki. 

Þátturinn í heild: 

Hægt er að styðja við verkefnið hér.