Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndina The Ring. Leikkonan hafði dregið sig úr sviðsljósinu og glímdi við fíknisjúkdóm. Hún var aðeins 35 ára þegar hún lést.
Það var kærasti hennar Roy Hernandez sem greindi frá andláti leikkonunnar en hann hafði skömmu áður stofnað til fjáröflunar á GoFundMe, en þá var leikkonan alvarlega veik á sjúkrahúsi. Að sögn Hernandez lést leikkonan eftir erfiða baráttu við heilahimnubólgu og blóðsýkingu en nú hefur People greint frá því að dánarmein leikkonunnar hafi verið alnæmi (e. AIDS).
Fyrrum umboðsmaður Chase, John Ryan, ásamt stjúpsystur hennar höfðu ráðið einkaspæjara til að hafa uppi á henni í von um að koma leikkonunni í meðferð. Ætluðu þau að gera heimildarmynd um leitina sem átti að heita Finding Lilo og vonuðust þau eftir farsælum endi. Ryan sagði í samtali við fjölmiðla skömmu eftir andlátið að hann hefði verið kominn með pláss fyrir Chase á meðferðarstöð í Kosta Ríka og taldi sig hafa verið mjög nærri því að finna hana. Þess í stað frétti hann af andláti hennar.
Sjá einnig: Barnastjarnan í hræðilegum aðstæðum mánuðum fyrir andlátið
Dánardómstjóri í Los Angeles hefur skráð dánarorsök leikkonunnar sem alnæmi ásamt afleiðingum langvinnrar fíkniefnaneyslu.
Hefur Ryan bent á að dánarbú leikkonunnar standi undir kostnaði við útför og varar hann við fjáröflun kærastans á GoFundMe.
„Þessi GoFundMe-söfnun er ekki að renna til nokkurs kostnaðar vegna Daveigh. Ég, faðir hennar, föðurbróðir hennar og allir okkar nánustu vinir sem þekktu hana áratugum saman hvetjum fólk til að ljá þessari söfnun ekki lið. Þessi maður sem heldur söfnuninni úti kom með hana á sjúkrahúsið í hræðilegu ástandi og lét engan í fjölskyldunni hennar vita fyrr en hún var látin svo hann gæti stýrt frásögninni. Raunveruleg fjölskylda Daveigh erum að sjá um útförina og við höfum haft samband við GoFundMe til að benda þeim á að þessi maður hóf þessa söfnun sjálfur í nafni Daveigh þegar hún var þá þegar meðvitundarlaus og við hvetjum fólk til að tilkynna söfnunina og ljá henni ekki lið.“
Ryan tók fram að það væri fyrirlitlegt að nota andlát leikkonunnar með þessum hætti.
„Mér finnst viðbjóðslegt að þessi maður sé að nota sviplegt fráfall vinkonu okkar til að græða nokkra dollara fyrir sig og fjölskyldu sína. Það eru engir reikningar sem þarf að greiða eða útfarargjald. Ég og fjölskyldan sjáum um það allt. Hvað mig varðar þykir mér að, miðað við ástandið sem hún var í við komuna á sjúkrahúsið, þessi maður eiga heima í fangelsi. Mér og fjölskyldu hennar býður við aðstæðunum sem hún var í áður en hún lést. Þessi gaur er að mála þetta upp eins og einhverja Rómeó og Júlíu-sögu sjálfum sér til hagsbóta.“
Vinur leikkonunnar og fyrrum neyslufélagi, Shawn Rosenthal, segir í samtali við People að hér sé horfin af sjónarsviðinu hæfileikarík kona.
„Hún var ótrúlega góð söngkona og við spiluðum tónlist saman sem við höfðum því miður ekki færi á að taka upp. Ég náði að verða edrú árið 2023 og hef því ekki hitt hana síðan. Sumir af edrú vinum hennar og ég vorum að leita hennar til að reyna að fá hjálp fyrir hana en það bar ekki erindi sem erfiði. Hún hafði umkringt sig af því versta versta. Þetta er þvílíkur harmleikur því enginn þeirra lét sér hagsmuni hennar varða. Ég vona að hún hafi loks fundið frið.“