Skipulagsmál geta verið skemmtileg eins og sést af frásögn blaðamanns Morrgunblaðsins, Atla Steins Guðmundssonar, sem búsettur er á Spáni. Þar segir hann frá því þegar ástralskur vinur hans rakst á skemmtilegt skipulag Skerjafjarðar.
„Glöggt er augað hinum megin á hnettinum. Ágætur vinur í Ástralíu, Atthew Medwards (ekki svo í þjóðskrá þó), benti mér á hulda dóma í skipulagi Skerjafjarðar. Ég reiknaði með n-ta heimskulega gervigreindarbrandaranum en einföld rannsókn með Google Maps staðfesti það sem augað greinir sjaldnast. Ísland skýtur þar með keltneskum akralistaverkum breska heimsveldisins ref fyrir rass þótt þarna sé ekki um frjósemistákn að ræða heldur forna hvatningu til endurvinnslu. Sumar borgir eru bara langt á undan í skipulagi.“
Mynd
Mynd