Fókus

Mel Brooks orðinn 100 ára gamall

Mynd
Brooks hefur fyllt hundraðið. Mynd/Getty

Melvin James Kaminsky, eða Mel Brooks eins og hann er gjarnan kallaður, er orðinn 100 ára gamall. Leikstjórinn góðkunni fæddist þann 28. júní árið 1926.

Brooks er einn af ástsælustu gamanmyndaleikstjórum sögunnar. Hann gerði kvikmyndir á borð við Blazing Saddles (1974), Young Frankenstein (1974), Silent Movie (1976), Spaceballs (1987) og Robin Hood: Men in Tights (1993).

Brooks er einn af aðens 28 einstaklingum sem hafa unnið Emmy, Grammy, Tony og Óskarsverðlaun. En ytra er það kallað að vinna EGOT.

Brooker er gyðingur, fæddur í New York borg. Hann var giftur leikkonunni Anne Bancroft í rúmlega 40 ár, eða þangað til hún lést árið 2005. Hann á fjögur börn. Brooks er gallharður demókrati og studdi dyggilega við forsetaframboð Joe Biden og Kamölu Harris.