Fókus

Stebbi skellti sér í „18 grýlna jakkann“ í tilefni dagsins

Mynd
Haukur Henriksen verkefnastjóri viðburða sér til þess að jakkinn passi óaðfinnanlega. Mynd: Mummi Lú.

Það voru eflaust margir sem tóku eftir jakkanum þegar Stefán Hilmarsson steig á svið með félögum sínum úr Sálinni hans Jóns míns undir lok 60 ára afmælistónleika Stefáns í Hörpu í gærkvöldi. Þetta var enginn venjulegur jakki heldur hinn goðsagnakenndi 18 grýlna jakki Péturs Kristjánssonar, einn frægasti jakki íslenskrar poppsögu.

Jakkinn öðlaðist heimsfrægð þegar honum var gert skil í laginu Krókurinn, sem var eitt vinsælasta lag landsins árið 1992. Þar lifðu áfram orðatiltæki og skemmtilegt slangur Péturs Kristjánssonar og „18 grýlna jakkinn“ varð hluti af íslenskri dægurmenningu.

Mynd
Haukur og Stefán. Mynd: Mummi Lú.

Valið á jakkanum var því engin tilviljun. Undir lok tónleikanna komu félagar Stefáns úr Sálinni hans Jóns míns óvænt á sviðið í fyrsta sinn frá árinu 2018 og fluttu með honum nokkur af stærstu lögum sveitarinnar. Viðtökurnar voru með þeim hætti að salurinn stóð á fætur, söng með og ætlaði nánast af göflunum þegar lög á borð við Ekkert breytir því og Hvar er draumurinn ómuðu um Hörpu.

Mynd
Sálin hans Jóns míns: Guðmundur Jónsson, Jóhann Hjörleifsson, Jens Hansson, Stefán Hilmarsson og Friðrik Sturluson, ásamt Pétri Valgarð Péturssyni. Mynd: Mummi Lú.

Tónleikarnir voru haldnir í tilefni sextugsafmælis Stefáns og um leið 40 ára tónlistarferils hans. Uppselt var á báða afmælistónleikana og seldust miðarnir upp á örfáum dögum.

Á efnisskránni var farið yfir ferilinn frá fyrstu skrefunum með Sókrates og 18 rauðar rósir yfir í stærstu smelli Sálarinnar og sólóferilsins. Meðal þeirra sem komu fram með Stefáni voru Gospelkór Lindakirkju, Eyjólfur Kristjánsson, sonur hans Birgir Steinn Stefánsson og söngkonurnar Erna Hrönn og Regína Ósk.

Mynd
Gestir tóku vel undir í öllum lögum. Mynd: Mummi Lú.

Stefán tók sér einnig stund til að minnast vinar síns Björgvins Halldórssonar með fallegum flutningi á laginu Í gær, sem þeir sungu saman á plötu Björgvins árið 2003. Birgir Steinn söng lagið með föður sínum í gær.

Áhorfendur fengu jafnframt að sjá fyrstu myndirnar úr væntanlegri kvikmynd, Hvar er draumurinn, þegar kynningarstikla var frumsýnd í salnum. Myndin er byggð á söngleiknum með sama nafni, sem unninn var upp úr lögum Sálarinnar og vakti mikla athygli þegar hann var sýndur af nemendum Verzlunarskóla Íslands.

En það var 18 grýlna jakkinn sem margir töluðu um á leiðinni út. Stundum þarf ekki nema einn jakka til að rifja upp heilan kafla í íslenskri tónlistarsögu. 

Mynd
Fullur salur fagnar Stefáni og félögum hans. Mynd: Mummi Lú.
Mynd
Stefán Hilmarsson. Mynd: Mummi Lú.