Harry Bretaprins og eiginkona hans, Meghan Markle, eru á leiðinni til Bretlands í júlí. Að sögn Fox-fréttastofunnar er talið líklegt að hjónin muni þá gista á æskuheimili Díönu prinsessu en með því gæti prinsinn sent kraftmikil skilaboð til fjölskyldu sinnar.
Þarna sé hann bókstaflega að leita í þann væng fjölskyldu sinnar sem ekki er konungborinn. Á æskuheimili Díönu, Althorp, geti hann reiknað með næði, friðhelgi einkalífs og eins komist í tengsl við minningu móður sinnar. Það standi honum ekki til boða í Buckingham-höll. Althorp sé þó enginn kofi og hafi allt til boða sem kona eins og Meghan Markle hefur vanist síðan hún varð hertogaynja. Það sem mestu máli skiptir að með þessari tilhögun fengu hjónin smá vald á stað þar sem þau höfðu áður upplifað sig valdlaus.
Díana er grafin við Althorp, enda þótti viðeigandi að hún fengi að hvíla fjarri sviðsljósi fjölmiðla sem varð henni að aldurtila. Sérfræðingar sem FOX ræddi við töldu einnig að þetta væri falleg leið til að heiðra minningu Díönu.
Fjölmiðlar hafa undanfarið haldið því fram að Karl Bretakonungur hafi boðið yngri syni sínum að gista í Buckingham-höll á meðan þau dvelja í Bretlandi. Prinsinn hafi afþakkað boðið.
Fjölmiðlakonan Amanda Matta segir við FOX að Harry sé að senda skilaboð með þessu. Þarna sé hann að segja að hann vilji nú rækta rætur sínar og tengsl við móðurfjölskylduna og sé tilbúinn að fórna tengslum sínum við hið stofnanalega konungslíf til að geta tryggt fjölskyldu sinni friðhelgi einkalífs.
Nánar má lesa um þessar konunglegu gististaðavangaveltur hjá FOX.