Fókus

Ragnar Þór gefur út nýtt lag boðar breiðskífu: „Eftir nokkrar æfingar varð sköpunarþörfin þó sögunni yfirsterkari“

Mynd
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og trommuleikari.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og trommuleikari hljómsveitarinnar LOS hefur tilkynnt um nýtt lag sveitarinnar. Þá boðar hann breiðskífu í haust. 

Hér má hlusta á lagið.

„LOS var stofnuð árið 1992 af fimm æskuvinum úr Breiðholtinu og starfaði þétt í fjögur ár. Sveitin var mjög virk á tónleikasenunni og tók upp töluverðan fjölda laga, en aðeins tvö þeirra litu dagsins ljós á safnplötum, Laut og Ástfrægð,“ segir ráðherrann í færslu á Facebook.

„Eftir að sveitin hætti störfum árið 1996 hélt söngvarinn Hjörvar Hjörleifsson áfram með sólóferil sem enn stendur og hefur getið af sér fimm breiðskífur og saxófónleikarinn Steinar Sigurðarson hefur verið afar virkur á tónlistarsenunni og gefið út eina breiðskífu undir nafninu Mr. Martini.“

Vinaböndin hafa aldrei slitnað og hafa meðlimirnir haldið tryggð við tónlistina á sinn hátt. 

„Vinaböndin slitnuðu heldur aldrei og þegar hugmyndin um að endurvekja bandið og taka gömlu lögin upp almennilega árið 2024 stukku allir umsvifalaust á vagninn. Eftir nokkrar æfingar varð sköpunarþörfin þó sögunni yfirsterkari og ný lög tóku að fæðast,“ segir Ragnar Þór.

„Útkoman er sú að haustið 2026 gefur hljómsveitin LOS út heila breiðskífu með glænýjum lögum og endurnýjuðum póst-pönk-anda.“