Læknirinn og sælkerinn Ragnar Freyr Ingvarsson varð fimmtugur fyrr á þessu ári. Auk þess að vera læknir og listakokkur er hann einnig mikill mannvinur sem sýndi sig þegar hann afþakkaði allar gjafir frá öllum sem vildu gleðja hann á stórafmælinu.
Í stað þess að fá gjafir bað hann alla um að styrkja Samhjálp. Rætt er við Ragnar í viðtali á vef Samhjálpar í dag þar sem hann var spurður út í þessa velvild í garð samtakanna.
„Ég hef gert mitt besta að lyfta Samhjálp upp á samfélagsmiðlum og beðið fólk að gefa máltíð fyrir stórhátíðisdaga. Ætli velvilji minn í garð samtakanna helgist ekki af því að ég hef unnið á Landspítalanum áratuginn og því í starfi þar sinnir maður öllum sem sem þangað koma. Þá hittir maður fólk sem glímir við alls konar vandamál, sumir er því miður heimilislausir og glíma við fíknivanda og margvíslegar aðrar áskoranir. Það er óhjákvæmilegt að þá leiði maður hugann að því hvert þetta fólk getur leitað þegar það verður svangt og skortir stuðning,“ sagði Ragnar.
Eftir að hann kynnti sér starfsemina hefur hann og eiginkona hans meðal annars hjálpað til á Þorláksmessu.
„Ég hjálpaði eitthvað til við elda en kokkurinn sá um matreiðsluna að mestu,“ segir hann hógvær. „Já, ég hef komið nokkrum sinnum á Kaffistofuna að hjálpa til. Alltof sjaldan reyndar en það stendur kannski til bóta núna þegar maður hefur meiri tíma. Ég til í hvað sem er til að hjálpa Samhjálp. Það eru alveg hreinar línur.“