Fyrrverandi eiginmanni leikkonunnar Christinu Ricci hefur verið neitað um bráðabirgðaforsjá sonar þeirra. James Heerdegen, sem var giftur leikkonunni á árunum 2013-2020, taldi rétt að hann fengi forsjána eftir að sonur þeirra, Freddie sem er 11 ára, sendi honum skilaboð þar sem fram kom að leikkonan hefði drukkið áfengi í flugi.
Eins og áður segir þá skildu leikkonan og Heerdegen á árinu 2020 en ári síðar fór Ricci fram á nálgunarbann með vísan til þess að fyrrverandi maður hennar hefði beitt hana ofbeldi á sambúðartíma hennar.
Heerdegen lýsti því fyrir dómstólum að sonur hans hefði sent skilaboð um að Ricci hefði verið að drekka í flugi þeirra mægðina til Kanada um miðjan júní og notaði hann „ákveðið orðalag“ til að lýsa því hvernig móðir hans drakk og hvernig hún hegðaði sér í kjölfarið.
Fram kemur þó í gögnunum að Freddie hafi við meðferð málsins viðurkennt að hann hafi verið að ýkja drykkju móður sinnar og hafi brugðist of harkalega við með því að senda áðurnefnd skilaboð á föður sinn. Sagðist Freddie áfram vilja vera í forsjá móður sinnar enda stafaði honum engin ógn af henni.
Leikkonan fór fram á að gögn málsins, þar sem finna má áðurnefnd skilaboð sonar hennar, yrðu bundin trúnaði með vísan til þess að sonur hennar hafi orðið fyrir einelti í skóla og að skilaboðin væru til þess fallin að verða til frekara eineltis með tilheyrandi neikvæðum afleiðingum á andlega heilsu hans. Dómari féllst á kröfu leikkonunnar og hafnaði kröfu Heerdegens um forsjá.
Árið 2021 fékk Ricci, eins og áður segir, nálgunarbann gegn fyrrverandi manni sínum með vísan til langvarandi heimilisofbeldis sem hefði bæði verið líkamlegt og andlegt. Ofbeldið hafi ítrekað átt sér stað fyrir framan son þeirra. Heerdegen hefur þó neitað sök.
Ricci giftist núverandi manni sínum, hárgreiðslumanninum Mark Hampton, árið 2021 og það sama ár kom dóttir þeirra, Cleo, í heiminn. Christina Ricci er hvað frægust fyrir leik sinn í kvikmyndunum um Adams-fjölskylduna, kvikmyndinni um drauginn Casper og hryllingsmyndinni Sleepy Hollow. Lítið fór fyrir henni í kvikmyndabransanum um tíma en hún er nú snúin til baka af krafti og hefur undanfarin ár leikið í þáttunum Wednesday og Yellowjacket.