Karl III Bretakonungur og Kamilla drottning ætla ekki að flytja í Buckinghamhöll þegar dýrum framkvæmdum lýkur á byggingunni. Buckingham er eitt helsta kennileiti Bretlands og hafa margir Íslendingar farið þangað að skoða sig um.
Til stendur að auka enn aðgengi ferðamanna að höllinni og hefur það áhrif á ákvörðun konungshjónanna. Munu þau halda áfram að búa í Clarence House skammt frá en höllinn verður áfram opinberar höfuðstöðvar embættisins.
Nú standa yfir miklar framkvæmdir við höllina sem kosta 370 milljón pund. Viktoría drottning var fyrsti þjóðhöfðingi Bretlands til að búa í Buckingham, flutti hún þangað árið 1837.