Fókus

Sækir um skilnað frá tónlistarmanninum með vísan til „óviðeigandi hjúskaparhegðunar“

Mynd
Jack White og Olivia Jean
Jack White og Olivia Jean/Getty

Olivia Jean er að skilja við tónlistarmanninn Jack White eftir fjögurra ára hjónaband. Frá þessu greinir TMZ sem hefur undir höndum skilnaðarbeiðnina sem var lögð fram í byrjun mánaðar í Nashville. Þar segir að ástæða skilnaðarins sé sú að White hafi gerst sekur um „óviðeigandi hjúskaparhegðun sem gerir áframhaldandi sambúð bæði óörugga og óviðeigandi“.

Þetta þarf þó ekki að þýða nokkuð misjafnt, en borgin Nashville er í Tennessee-ríki þar sem ekki er gert ráð fyrir að hjón geti komið sér saman um að skilja án þess að sök sé lögð á annað hjónanna. Grípa því hjón gjarnan á það ráð að vísa til óviðeigandi hjúskaparhegðunar enda er það hugtak almennt og víðtækt. Upphaflega var þessi skilnaðarástæða ætluð fyrir tilvik þar sem annar aðilinn hefði gerst sekur um grimmilega og ómannúðlega meðferð en í framkvæmd er því þó beitt þegar hjón vilja hreinlega skilja.

Þetta var þriðja hjónaband White en líklega er fyrsta hjónabandið hans það sem hefur haft mest áhrif á líf hans. Fyrsta eiginkona hans var Meg White en saman stofnuðu þau rokkdúóið White Stripes. Þau giftu sig ung en voru skilin þegar hljómsveitin sló í gegn og til þess að fá fólk til að einbeita sér heldur að tónlistinni heldur en sambandi þeirra komu þau lengi fram sem systkini til að útskýra hvers vegna þau deildu eftirnafni. White-eftirnafnið kemur frá Meg en Jack tók það upp þegar þau giftu sig og hélt því eftir skilnaðinn. Áður hét hann John Anthony Gills.

Hann og Meg skildu árið 2000 en Jack giftist svo fyrirsætunni og tónlistarkonunni Karen Elison árið 2005. Það hjónaband entist fram til ársins 2013. Hann og Olivia kynntust á tónleikum árið 2009 en netverjar hafa velt því fyrir sér hvort þau hafi byrjað að stinga saman nefjum á meðan Jack var enn giftur Elison.