Fókus

Botnleðja fór í partý með Blur: „Svo bara allt í einu erum við komnir á túr með þessum köllum”

Mynd

Hljómsveitin Botnleðja kemur saman fimmtudag og föstudag til að leika í Bæjarbíói í Hafnarfirði á tónleikaröðinni Í hjarta Hafnarfjarðar. Þeir Halli og Heiðar, Haraldur Freyr Gíslason, trommari, og Heiðar Örn Kristjánsson, gítarleikari og söngvari, voru gestir í hlaðvarpinu Popparasögur í þessari viku.

Þar fóru þeir yfir upphaf Botnleðju og sigurinn í Músíktilraunum, fyrstu árin, frægðina og viðhorfið til tónlistarbransans, óvænta tengingu við Blur og tónleikaferðina með bresku stórsveitinni, samstarfið við Sinfóníuhljómsveit Íslands, tilraunir erlendis og útgáfu á ensku, Eurovision-ævintýrið og Júróvísuna, málamiðlanir og mögulega nýja plötu.

Hljómsveitin er í góðu formi og hafa æfingar fyrir tónleikana gengið vel. „Ég myndi segja að við værum að komast í hörkuform. Við höfum alltaf verið duglegir að æfa gegnum tíðina og það er engin breyting á því í þetta skiptið,” segir Heiðar í hlaðvarpinu.

Mynd

„Something might turn up”

Það hafa fáar íslenskar hljómsveitir komið eins harkalega inn á íslenska tónlistarsenu og Botnleðja gerði um miðjan tíunda áratuginn. Sigur í Músíktilraunum árið 1995 og frumraun þeirra Drullumall vöktu verðskuldaða athygli á sínum tíma. Þeir viðurkenna að þeir hafi komið inn í Músíktilraunir á með það eitt að markmiði að vinna. „Við vorum rosa eitthvað hrokafullir og sigurvissir sko. Ég veit ekki hvað við hefðum gert ef við hefðum ekki unnið þetta,” segir Halli.

Strax árið eftir kom út önnur plata sveitarinnar, Fólk er fífl, og mátti heyra mikla þróun á þessum stutta tíma. „Þegar ég spái í þessu þá finnst mér þetta mjög hröð þróun. Við erum bara að þroskast og þróast sem hljómsveit fyrir augum almennings,” segir Heiðar.

Það gerðist svo á þessum tíma að meðlimir hljómsveitarinnar Blur komu óvænt inn á tónleikastaðinn Tunglið þar sem Botnleðja var að spila. „Sama kvöld förum við í partí í Mosfellsdal með þeim,” segir Halli og Heiðar tekur við orðinu. „Við spilum fótbolta og drekkum fram eftir nóttu. Og svo bara nokkrum dögum síðar eða eitthvað segir Damon Albarn, „something might turn up“.”

Úr varð að Botnleðju var boðið að spila með Blur á tónleikaferðalagi þeirra um Bretland. „Þetta er náttúrlega draumur hvers tónlistarmanns að vera boðið á túr. Við vorum miklir Blur-aðdáendur. Við vorum búnir að hlusta á Leisure-plötuna í drasl og hún er mikill áhrifavaldur á upphaf Botnleðju. Svo bara allt í einu erum við komnir á túr með þessum köllum,” segir Heiðar.

Fórum í þetta til að vinna

Þeir Halli og Heiðar ræða í hlaðvarpinu einnig um tónleika sem Botnleðja hélt með Sinfóníuhljómsveit Íslands. „Það var algjört klúður. Þetta var í fyrsta skipti sem Sinfó gerir svona tónleika með einhverri svona rokkhljómsveit,” segir Halli.

„Við heyrðum ekkert í sinfóníunni og við vorum bara einhvern veginn í okkar eigin heimi. Svo átti stjórnandinn að ná að tengja það inn í sinfóníuna. Það tókst bara ekki nægilega vel. Þannig að þetta var stundum eins og þetta væru bara tvær hljómsveitir í sitt hvoru laginu. Ég hélt að þetta væri geggjað, svo heyrðum við þetta eftir á,” bætir Heiðar við.

Þeir töluðu einnig um stærsta brandara Botnleðju til þessa þegar sveitin tók þátt með Júróvísuna í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2003 og minnstu munaði að þeir hefðu farið alla leið með Leðjuna til Lettlands.

Það var Halli sem átti hugmyndina á sínum tíma. „Þetta bara svona áttu að flippa. Mér fannst þetta fyndið,” rifjar hann upp. „En við fórum samt í þetta til að vinna. En það er eins og við gerum það alltaf. Það voru vonbrigði að vinna ekki,” bætir Heiðar við en strákarnir enduðu í öðru sæti á eftir Birgittu Haukdal.

Mögulega ný plata á leiðinni

Eftir tónleika Botnleðju í Bæjarbíói í vikunni ætla strákarnir að halda æfingum áfram. „Við viljum alltaf vera mjög þéttir og góðir á tónleikum. Við leggjum mikið á okkur til þess að svo sé. Og með hverju ári sem líður þykir manni vænna og vænna um bara þetta samstarf og þessa vini sem maður á og lærir að meta allt sem við höfum gengið í gegnum,” segir Heiðar.

„Kannski gerum við bara plötu eða eitthvað. Maður veit aldrei. Við erum í formi núna. Þegar við erum búnir að spila þessa tónleika getum við, ef við höldum áfram að æfa, farið að búa til músík. Það væri bara fínt fyrst við erum komnir í stand,” segir Halli. Þetta yrðu stórfréttir í íslenskri tónlist þar sem það hefur ekki komið út nýtt lag frá Botnleðju síðan árið 2013.