Fókus

Blúsveisla í Hafnarfirði til styrktar Píeta samtökunum

Mynd

Það er sannkölluð blúsveisla framundan í brugghúsinu Ægi 220 í Hafnarfirði,laugardaginn 27. júní til styrktar Píeta samtökunum. Margir af fremstu blúsurum landsins stíga á svið og leggja málefninu lið á stórtónleikum sem hefjast kl. 15 og standa til miðnættis.

Á dagskrá verða 13 hljómsveitir, glæsileg bílasýning frá Krúser og dýrindis matvagnar verða á svæðinu.

Allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur til Píeta samtakanna og allt tónlistarfólk gefur vinnu sína til styrktar Píeta. Tónleikarnir eru ómetanlegt framlag og hjálpar til að halda úti öflugri og gjaldfrjálsri þjónustu fyrir viðkvæman hóp og aðstandendur.

Gestir geta farið af svæðinu og komið aftur að vild meðan á viðburðinum stendur.

Staðsetning: Ægir 220, Strandgata 90, Hafnarfirði

Húsið opnar: kl. 14:30

Tónleikar hefjast: kl. 15:00

Bílasýning frá: kl. 15:00

Miðaverð: 3.900 kr. Miðasala er á midi.is.

Mynd

Dagskrá

15:00–15:30, Fógetarnir

15:40–16:10, GG Blús

16:20–16:50, Blússveit Jonna Ólafs

17:00–17:30, MMG

17:40–18:10, Hráefni

18:20–18:50, Ungfrúin

19:00–19:30, Lame Dudes

19:40–20:10, CC Fleet

20:20–20:50, Bjössi Thor

21:00–21:30, Krummi

21:40–22:10, Beggi Smári, Beggi Morthens, Þorleifur Guðjóns, Einar Scheving og Gunnar Örn

22:20–22:50, Gummi P

23:00–23:30, Ebenezer

Fram koma meðal annars:

Guðmundur Pétursson, Krummi Björgvinsson, Björn Thoroddsen, Óskar Logi, Beggi Smári,

Beggi Morthens, Þorleifur Guðjóns, Einar Scheving, Ebenezer, CC Fleet Blues Band, Lame

Dudes, Ungfrúin, Hráefni, MMG, Blússveit Jonna Ólafs, GG Blús og Fógetarnir.

„Við hvetjum alla blúsunnendur, bílaáhugafólk og velunnara Píeta samtakanna til að mæta og eiga ógleymanlegan dag saman við höfnina. Píeta samtökin tala mikið um mikilvægi þess að tala um tilfinningar. Það má nú segja að blúsarar hafi verið á undan sinni samtíð að tala og syngja um tilfinningar og blúsinn dregur einmitt nafn sitt af því, að tala um trega, drunga og erfiða hluti - að segja það upphátt!! Svo það kemur ekki á óvart akkúrat að þessi föngulegi hópur gefi vinnu sína og ágóða tónleikanna til málefnis eins og Píeta samtakanna.“