fbpx
Laugardagur 17.janúar 2026
Fókus

Diddy sagður hafa kallað mömmu sína tík og slegið hana

Fókus
Fimmtudaginn 4. desember 2025 06:30

Diddy með móður sinni, Janice. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Sean „Diddy“ Combs er sagður hafa slegið móður sína og kallað hana tík þegar hún spurði hann út í atvik í íþróttasal City College of New York í lok desember árið 1991 þar sem níu manns létust.

Um var að ræða góðgerðarviðburð sem rappararnir Diddy og Heavy D skipulögðu, en gríðarlegur troðningur myndaðist í salnum með fyrrgreindum afleiðingum.

Í heimildarmyndinni Sean Combs: The Reckoning, sem frumsýnd var á Netflix í gær, er rætt við meðstofnanda Bad Boy Records, Kirk Burrowes, þar sem hann lýsir samskiptum Diddy og móður hans eftir atvikið.

Diddy og Burrowes voru æskuvinir og rifjaði hann upp í þættinum þegar hann var staddur í hótelherbergi með Diddy og móður hans, Janice Combs, á Manhattan þar sem atvikið kom til tals. Á þessum tíma var Diddy nýhættur í skóla til að einblína að fullu á tónlistarferilinn.

„Hann vissi ekki hvað myndi gerast,“ sagði Burrowes í þættinum. „Og ég sá Janice spyrja Sean út í þetta. Hann er að fara inn í þessa tónlistardæmi. Hann er nýhættur í skóla og nú hefur þessi gífurlegi harmleikur átt sér stað. Hún var að velta fyrir sér: „Tók hann rétta ákvörðun?,“ sagði hann en Janice virðist hafa verið efins um að það hafi rétt hjá syni hennar að hætta í skóla.

„Og ég sá hann leggja hendur á hana,“ fullyrti hann. „Kalla hana tík og slá hana,“ sagði hann. Í þættinum er tekið fram að Diddy hafi ekki svarað fyrirspurn kvikmyndagerðarmannanna um það hvort hann hafi beitt móður sína ofbeldi.

Mörg ár eru liðin síðan það slitnaði upp úr vinskap Diddy og Burrowes, en Burrowes sakaði hann um ofbeldi, líkamlegt og andlegt, fjársvik og kúgunartilburði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sló í gegn um aldamótin í vinsælum þáttum – Óþekkjanlegur í dag

Sló í gegn um aldamótin í vinsælum þáttum – Óþekkjanlegur í dag
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnandinn Jónas Sen lýsir reynslu sinni af „snjóruðningsforeldrum“ – „Óþægindi eru ekki ofbeldi“

Gagnrýnandinn Jónas Sen lýsir reynslu sinni af „snjóruðningsforeldrum“ – „Óþægindi eru ekki ofbeldi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að Nick Reiner sé í engum tengslum við veruleikann – Hlakkar til að fagna afmæli föður síns í mars

Segir að Nick Reiner sé í engum tengslum við veruleikann – Hlakkar til að fagna afmæli föður síns í mars
Fókus
Fyrir 3 dögum

Afhjúpa það sem Snoop Dogg sagði sem var klippt út í beinni útsendingu

Afhjúpa það sem Snoop Dogg sagði sem var klippt út í beinni útsendingu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vandræðalegt augnablik Laufeyjar á Golden Globe – „Það er svo sárt að horfa á þetta“

Vandræðalegt augnablik Laufeyjar á Golden Globe – „Það er svo sárt að horfa á þetta“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kári Egils í Iðnó

Kári Egils í Iðnó