fbpx
Laugardagur 17.janúar 2026
Fókus

Segir að það sé engin leið til að bjarga hjónabandinu

Fókus
Miðvikudaginn 3. desember 2025 11:30

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónaband leikkonunnar og grínistans Amy Schumer og Chris Fischer stendur á brauðfótum samkvæmt heimildum Page Six.

„Þau hafa verið að glíma við erfiðleika í langan tíma og eins og ég skil þá eru þau að vinna í því að skilja að borði og sæng,“ sagði heimildarmaður náinn parinu.

Slúðurmiðlar vestanhafs greina frá því að vandamálin byrjuðu árið 2023. „Það er engin leið til að bjarga hjónabandinu en Amy vill að skilnaðurinn gangi vel fyrir son þeirra, þannig þau eru að finna út úr því hvað virkar best,“ sagði heimildarmaðurinn.

Amy tjáði sig stuttlega um málið á Instagram fyrr í vikunni. „Hvað sem gerist milli okkar Chris hefur ekkert að gera með þyngdartap eða einhverfu. Krossum fingur að við komumst í gegnum þetta, hann er bestur.“

Þyngdartapið nefndi hún því hún hefur grennst mikið eftir að hafa byrjað á þyngdartapslyfinu Mounjaro. Chris er á einhverfurófinu. Þau giftu sig árið 2018 og eignuðust son árið 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Linda Pé segir þetta lykilinn að varanlegum árangri – „Aðferðin sem þú hefur verið að nota fram til þessa virkar ekki“

Linda Pé segir þetta lykilinn að varanlegum árangri – „Aðferðin sem þú hefur verið að nota fram til þessa virkar ekki“
Fókus
Í gær

Myndin svo mikið unnin að fólk hélt hún væri rúmlega 40 árum yngri

Myndin svo mikið unnin að fólk hélt hún væri rúmlega 40 árum yngri
Fókus
Fyrir 4 dögum

Össi bauð Thelmu á fyrsta stefnumótið og steinsofnaði – ,,Svo var hann líka í öfugum bol og sitt hvorum sokknum”

Össi bauð Thelmu á fyrsta stefnumótið og steinsofnaði – ,,Svo var hann líka í öfugum bol og sitt hvorum sokknum”
Fókus
Fyrir 4 dögum

Musk ætlar að krefjast fullrar forsjár sonar síns vegna afsökunarbeiðni barnsmóðurinnar

Musk ætlar að krefjast fullrar forsjár sonar síns vegna afsökunarbeiðni barnsmóðurinnar