fbpx
Laugardagur 06.desember 2025
Fókus

Segir að það sé engin leið til að bjarga hjónabandinu

Fókus
Miðvikudaginn 3. desember 2025 11:30

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónaband leikkonunnar og grínistans Amy Schumer og Chris Fischer stendur á brauðfótum samkvæmt heimildum Page Six.

„Þau hafa verið að glíma við erfiðleika í langan tíma og eins og ég skil þá eru þau að vinna í því að skilja að borði og sæng,“ sagði heimildarmaður náinn parinu.

Slúðurmiðlar vestanhafs greina frá því að vandamálin byrjuðu árið 2023. „Það er engin leið til að bjarga hjónabandinu en Amy vill að skilnaðurinn gangi vel fyrir son þeirra, þannig þau eru að finna út úr því hvað virkar best,“ sagði heimildarmaðurinn.

Amy tjáði sig stuttlega um málið á Instagram fyrr í vikunni. „Hvað sem gerist milli okkar Chris hefur ekkert að gera með þyngdartap eða einhverfu. Krossum fingur að við komumst í gegnum þetta, hann er bestur.“

Þyngdartapið nefndi hún því hún hefur grennst mikið eftir að hafa byrjað á þyngdartapslyfinu Mounjaro. Chris er á einhverfurófinu. Þau giftu sig árið 2018 og eignuðust son árið 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Var leikkonunni byrlað? Lögregla varpar ljósi á það sem sást á eftirlitsmyndavélum

Var leikkonunni byrlað? Lögregla varpar ljósi á það sem sást á eftirlitsmyndavélum
Fókus
Í gær

Hnýta í prinsinn og segja hann hafa gert sig að fífli á meðan tengdafaðir hans liggur á gjörgæslu

Hnýta í prinsinn og segja hann hafa gert sig að fífli á meðan tengdafaðir hans liggur á gjörgæslu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ný mynd af Vilhjálmi og Katrínu vekur athygli – Með stærstu kórónuna til þessa

Ný mynd af Vilhjálmi og Katrínu vekur athygli – Með stærstu kórónuna til þessa
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kynlífsráðgjafi svarar: Hversu oft ættu pör að stunda kynlíf á viku?

Kynlífsráðgjafi svarar: Hversu oft ættu pör að stunda kynlíf á viku?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bergþóra var svo djúpt sokkin í kaupfíkn að hún faldi hluti í Cheerios-pökkum

Bergþóra var svo djúpt sokkin í kaupfíkn að hún faldi hluti í Cheerios-pökkum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Upplifir sig einmana yfir hátíðarnar þar sem eiginmaðurinn er Trölli

Upplifir sig einmana yfir hátíðarnar þar sem eiginmaðurinn er Trölli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jólabókaormurinn – Ævintýri sem rata ætti í jólapakka allra barna

Jólabókaormurinn – Ævintýri sem rata ætti í jólapakka allra barna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Frumbyrjur – Ljúfsár og heillandi saga um mannlegt eðli og ástina sem ósögð er

Frumbyrjur – Ljúfsár og heillandi saga um mannlegt eðli og ástina sem ósögð er