fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fókus

4 hlutir sem er gott að hafa í huga fyrir jólahlaðborðið með vinnunni svo þú endir ekki atvinnulaus

Fókus
Sunnudaginn 30. nóvember 2025 09:00

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta er sá tími árs þegar vinnustaðir koma saman að borða dýrindismat, drekka gott vín og fagna saman jólahátíðinni.

En þetta getur líka verið sá tími þar sem fólk fer yfir strikið, drekkur til dæmis of mikið og gerir hugsanlega eitthvað sem getur orðið til þess að það missir vinnuna.

SEEK er ástralskur atvinnuleitarmiðill, svipaður og Alfreð á Íslandi, og birti nýverið grein um hvað skal hafa í huga fyrir jólahlaðborðin, svo maður missi nú ekki vinnuna og endi á að skoða atvinnuauglýsingar fyrir áramót.

Mynd/Pexels

Mundu að þú ert í vinnuumhverfi

Þó svo að viðburðurinn sé ekki haldinn á vinnustaðnum sjálfum eða vinnutíma þá ertu samt í vinnuumhverfi.

„Það þýðir að þú þarft að vera meðvitaður um að haga þér alveg eins og þú myndir gera í vinnunni,“ segir sérfræðingur SEEK, Miranda Doessel.

Skynjaðu andrúmsloftið (e. read the room)

Vinnupartý eru ekki besti tíminn til að deila öfgakenndum skoðunum eða byrja að deila við einhvern.

„Þetta er frábært tækifæri til að tengjast samstarfsfélögum betur, en ekki gleyma því að samtöl eiga samt að vera fagleg,“ segir Miranda.

Hún segir að ef fólk er ekki með það á hreinu hvað sé í lagi að tala um og hvað ekki þá hvetur hún það til að fylgjast með um hvað aðrir eru að tala.

Passaðu þig á slúðrinu

Það er oft mikið um slúður og þess háttar í vinnupartýjum en Miranda hvetur fólk til að forðast slíkt.

Þú vilt ekki gera eitthvað sem lætur fólk slúðra um þig, en þú ættir líka að forðast að slúðra um aðra og dreifa kjaftasögum.

Miranda segir að það sé góð þumalputtaregla að „ef þér þætti í lagi að einhver myndi taka upp samtalið ykkar og deila því á netinu með nafninu þínu, þá er þetta líklegast í lagi.“

Takmarkaðu drykkjuna

Vertu búinn að ákveða hvað þú ætlar að drekka mikið og haltu þig við það.

„Hver manneskja ætti að þekkja eigin mörk,“ segir Miranda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“