fbpx
Miðvikudagur 15.janúar 2025
Fókus

Gunnar og Arnór segja dularfullu flygildin líka yfir Íslandi – Birta myndbönd frá Austfjörðum

Fókus
Miðvikudaginn 8. janúar 2025 10:38

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein frá Alkastinu:

Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður kumpánarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríðarlegri aukningu meintra tilfella fljúgandi furðuhluta.

Síðan í lok nóvember á síðasta ári hefur tilfellum fjölgað alveg gríðarlega þar sem venjulegt fólk segist verða vitni af fljúgandi furðuhlutum eða UFO. Ferlið sem virtist hefjast með dularfullum hnetti sem virtist bara svífa um á flugvellinum í Manchester varð svo að dularfullri atburðarás í New Jersey í BNA sem ekki er útséð hvernig muni enda. Kvöld eftir kvöld hefur himininn verið fullur af því sem virtust í fyrstu líkjast risavöxnum drónum en svo smátt og smátt eru flýgildin farin að taka á sig aðra mynd. Myndefni af dularfullum hnöttum eða „ORBS“ eru farin að streyma um á bæði frétta og samfélagsmiðlum og virðist sem nýr veruleiki að eiga sér stað. Eitthvað sem þótti tabú eða aðeins eitthvað sem kæmi frá villtustu álhöttum er nú farið að streyma frá afar venjulegu fólki sem verður þeirri reynslu aðnjótandi að sjá fljúgandi furðuhluti sem þau botna ekkert í.

Þessi flýgildi komast upp með að sveima tímunum saman yfir verndaðri lofthelgi vatnsbóla, kjarnorkuvera, vopnageymsla og herstöðva án þess að stjórnvöld svo mikið sem lyfti fingri. Yfirvöld halda fréttamannafundi þar sem almenning er sagt að engin hætta stafi af þessum flýgildum en samt segjast þeir ekki hafa neina einustu hugmynd um hvaðan þau eru að koma, hvert þau eru að fara eða hvað þau eru að gera; eitthvað sem Gunnari og Arnóri finnast vægast sagt mjög dularfullt.

Gunnar og Arnór.

Ekki nóg með það að þessar sýnir virðast vera að dreifa sér um öll Bandaríkin, heldur eru fréttir að berast víðs vegar úr heiminum og meðal annars frá Íslandi. Strákarnir töluðu um og sýndu myndir og myndbönd sem tekin voru á Austfjörðum í nóvember og desember sem sýna rauðar og bláar blikkandi stjörnur sem halda stöðu sinni í langan tíma áður en þær svo allt í einu hverfa. Einnig má sjá myndband frá Íslandi sem sýnt var í þættinum sem sýnir stjörnu sem líkist gervihnetti, nema hvað að bæði hraða- og stefnubreytingar eiga sér stað á mjög svo dularfullan hátt.

(Innskot: Myndböndin frá Íslandi eru sýnd á mínútu 18:17 í spilaranum hér að neðan)

Í samhengi við þessa sveiflu sem Gunnar vill meina að sé vitundarforritun að hálfu djúpríkis ræða þeir um þá atburðarás sem hófst árið 2017 þegar þremur myndböndum frá bandaríska hernum var lekið í New York Post. Pentagon staðfesti svo tveimur árum seinna að um þeirra efni væri að ræða og þeir viðurkenndu fúslega að flýgildin sem kæmu þarna fram væru ekki bara af óþekktum uppruna heldur líka virtust sýna flughæfni sem engin mannlegur máttur væri fær um að útfæra. Síðan sumarið 2023 hafa svo verið haldnar 3 eiðsvarnar vitnaleiðslur af vegum bandaríska þingsins þar sem uppljóstrarar, sem allir hafa starfað á vegum bandarísku leyniþjónustunnar og hersins, hafa komið fram undir nafni og talað opinskátt um mál sem líkist einhverju sem dregið er úr vísindaskáldsögu.

Gunnar vill meina að ákveðin endurforritunin sé hafin sem snúi að lokatrompi hinnar fámennu elítu sem starfi í skuggum og ætli sér algjört heimsyfirráð með sviðsetningu innrásar utan úr geimnum. Hann vill meina að þetta ferli sé búið að vera í undirbúning í áratugi og nú þegar maðurinn standi á barmi kjarnorkustyrjaldar sé tímasetningin ákjósanleg fyrir djúpríkið að láta til skara skríða.

Gunnar og Arnór töluðu talsvert um skilaboð Dr. Steven Greer sem er menntaður bráðalæknir en hefur helgað sig þessum málaflokki í rúma þrjá áratugi. Dr. Steven Greer vill meina að ákveðnir einstaklingar innan þessa djúpríkis hafi fengið sig full sadda á þessu leynimakki og muni koma fram undir nafni í kringum miðjan janúar með allar þær upplýsingar sem liggja fyrir í von um að þessi vægðarlausa sviðsetning nái ekki fram að keyra. Ef spár hans reynast réttar eru líkur á því að fram komi upplýsingar um tækni sem gerir okkur kleift að draga rafmagn úr andrúmsloftinu og þannig hafa ótakmarkaðan aðgang að óþrjótandi- og ókeypis orkulind; eitthvað sem orkufyrirtæki og ríkjandi valdhafar eru sjálfsagt mjög uggandi yfir.

Niðurstaða Gunnars og Arnórs í viðtalinu var að leyfa viku eða tíu dögum að líða og taka svo upp þráðinn aftur í öðrum þætti og sjá hvort staðhæfingar Greer hafi raungerst auk þess að mál tengd Roswell atvikinu, Pheonix lights og að sjálfsögðu atburðarás Roberts Lazar verði tekin fyrir fyrir, en saga Robert Lazar er að Gunnars mati eitt það áhugaverðasta sem komið hefur fram frá upphafi í heimi fljúgandi furðuhluta.

Þennan brautryðjandi þátt má heyra hér á spilaranum fyrir neðan. Myndband frá Íslandi má sjá á mínútu 18:17.

Ásamt að finna má Alkast Þvottahússins á öllum helstu streymisveitum eins og Spotify.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigurrós um hörmuleg örlög bróður síns – Segir að aðrir íbúar hafi viljað opna inn til hans en því hafi verið hafnað – „Hann hefði ekki þurft að deyja þarna“

Sigurrós um hörmuleg örlög bróður síns – Segir að aðrir íbúar hafi viljað opna inn til hans en því hafi verið hafnað – „Hann hefði ekki þurft að deyja þarna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

20 bestu streymisveiturnar – Ert þú með réttu áskriftirnar?

20 bestu streymisveiturnar – Ert þú með réttu áskriftirnar?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir mikilvægustu sjálfsræktina felast í þessu

Ragnhildur segir mikilvægustu sjálfsræktina felast í þessu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hvernig Helga Jean tókst raunverulega að breyta lífi sínu – „Það var það fyrsta sem ég gerði“

Hvernig Helga Jean tókst raunverulega að breyta lífi sínu – „Það var það fyrsta sem ég gerði“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr ekki sáttur við ættingja og vini – „Mér finnst þetta oft særandi og tillitslaust“

Jón Gnarr ekki sáttur við ættingja og vini – „Mér finnst þetta oft særandi og tillitslaust“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Paris Hilton birtir sláandi myndband af heimili sínu

Paris Hilton birtir sláandi myndband af heimili sínu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur segir marga gera þessi mistök beint eftir æfingu – Passaðu þig samt á einu

Ragnhildur segir marga gera þessi mistök beint eftir æfingu – Passaðu þig samt á einu