Hjónin deildu sorgarfréttunum á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. „Í dag yfirgáfu hundarnir okkar, Poupette og Walle, þessa plánetu […] Þeir dóu saman uppi í rúmi, hlustandi á Dancing Queen og umkringdir endalausri ást.“
Ayda eignaðist Poupette fyrir átján árum og kynntist eiginmanninum hálfu ári síðar. Þá átti hann þrjá stóra hund og var Ayda hrædd um að hann myndi ekki vilja lítinn loðbolta. En poppstjarnan kolféll fyrir krúttinu og ári síðar bættist Walle við fjölskylduna.
Þegar Robbie og Ayda giftust var Poupette brúðarmær og Walle var svaramaður.
„Í dag lauk stórum kafla. Í fyrsta sinn í átján ár mun Poupette ekki fylgja mér eins og skugginn og loðnu vinir mínir munu ekki taka á móti mér þegar ég kem heim. Fólk sem hefur aldrei átt gæludýr á kannski erfitt með að skilja þessa sorg […] En fyrir fólkið sem hefur átt og misst gæludýr, þá býð ég samúð mína. Ég vona að það hjálpi. Ég ætla að fara að gráta og taka nokkra daga í að melta þetta allt saman,“ segir Ayda.
Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan.
View this post on Instagram