Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari blæs á kjaftasögur um að sambandi hennar og Kristjáns Einar Sigurbjörnssonar, Kleina, sé lokið. Parið fagnaði árs afmæli þann 24. mars.
Kjaftasagan fékk byr undir báða vængi eftir að Hafdís Björg birti færslu í Facebook-hópnum Tattoo á Íslandi þar sem hún spurði: „Hver er bestur í cover up?“ Töldu margir að þetta þýddi að Hafdís Björg hygðist fjarlægja flúr með nafni Kleina. Nokkrum mánuðum eftir að þau byrjuðu saman fengu þau sér paraflúr með skammstöfun hvors annars tattúveraða á sig ásamt áletruninni: „Love me, till I die“ eða „Elskaðu mig, þar til ég dey.“ Þau eru einnig með með nafn hvors annars nálægt því allra heilagasta. Hafdís er með: „KLEINI“ á nárasvæðinu og Kleini er með: „Hafdís Björg“ fyrir ofan lífbeinið.
Sjá einnig: Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta
Í kjölfarið á fyrirspurninni um cover up fékk Hafdís Björg fyrirspurnir frá fjölmiðlum, þar á meðal Vísi og birtir hún skjáskot af skilaboðunum á Instagram-síðu sinni.
„Sæl kæra Hafdís, XXXXX XXXX heiti ég blaðamaður á Vísi. Nú ganga sögur um að þið Kristján séuð hætt saman. Er það rétt?“
Gerir Hafdís Björg jafnframt grín að sjálfri sér og lofar að spyrja aldrei aftur slíkrar fyrirspurnar undir nafni.
Hafdís Björg blæs þó á kjaftasögurnar og segir: „Við erum ekki hætt saman enda styttist í brúðkaup hjá þessum lúðum.“
Í samtali við DV segir Hafdís Björg undirbúning að brúðkaupi byrjaðan. „Við erum búin að velja dagsetningu sem verður næsta sumar og munum við deila henni þegar nær dregur. Undirbúningurinn er að sjálfsögðu byrjaður enda mikið sem þarf að skipuleggja og bóka með löngum fyrirvara.“
Ein af fyrstu ákvörðunum sem þurfti að taka var hvar þau ætluðu að gifta sig. „Við vorum flakkandi á milli þess að gifta okkur erlendis og bjóða nánustu vinum og ættingjum eða halda stórt brúðkaup hérna heima og bjóða öllum. Þegar við byrjuðum að plana þá vorum við bæði á þeirri ákvörðun að gera þetta með stæl hér heima og fagna ástinni með fólkinu okkar.“
Hafdís Björg og Kleini voru gestir í Fókus, spjallþætti DV, í febrúar og ræddu um pásuna frá samfélagsmiðlum, lífið og ný viðskiptaævintýri. Smelltu hér til að horfa á þáttinn. Þú getur einnig hlustað á Spotify.