fbpx
Þriðjudagur 05.desember 2023
Fókus

Grunaður morðingi Tupac Shakur handtekinn 27 árum eftir ódæðið

Fókus
Föstudaginn 29. september 2023 20:00

Tupac Shakur var skotinn til bana fyrir 27 árum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sextíu ára gamall klíkuforingi, Duane Davis eða Keefe D, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að hafa fyrirskipað morðið á rapparanum Tupac Shakur árið 1996.  Davis, sem var háttsettur í Compton Crips-glæpaklíkunni, var handtekinn af rannsóknarlögreglumönnum á gangi nærri heimili sínu í Las Vegas fyrr í dag og dreginn fyrir dómara þar sem ákæran var þingfest. Hafnaði dómstóllinn beiðni lögmanna Davis um að hann fengi að ganga laus gegn tryggingu.

Tupac var skotinn fjórum sinnum þann 7. september 1996 í Las Vegas, þegar hann var aðeins 25 ára gamall, og lést hann af sárum sínum þann 13. september. Rapparinn hafði öðlast heimsfrægð á þeim tíma, ekki bara fyrir tónlistina heldur hafði hann einnig getið sér gott orð á hvíta tjaldinu.

Duane Davis eða Keefe D

Handtaka Keefe D þarf þó ekki að koma nenum sem fylgst hefur með málinu á óvart. Glæpaforinginn hefur nefnilega montað sig af aðkomu sinni að morðinu í ótal viðtölum auk þess sem hann játaði aðild sína í ævisögu sinni Compton Street Legend. Þar sagðist hann hafa rétt frænda sínum,  Orlando ‘BabyLane’ Anderson, morðvopnið og sá skaut síðan rapparann. Þá hefur hann einnig tjáð lögreglunni um aðkomu sína en það gerði hann fyrir tæpum 15 árum þegar hann átti yfir höfði sér þungan dóm fyrir fíkniefnamisferli.

Tilefni morðsins var að fyrr um kvöldið höfðu Tupac og meðlimir fylgdarliðs hans, sem höfðu tengsl við glæpaklíkuna The Bloods – svörnum óvinum Crips, barið Anderson til óbóta eftir að hann hafði reynt að stela minjagrip frá ferli rapparins. Keefe D vissi að Tupac átti að troða upp á tilteknum skemmtistað ogf fékk frændi hans far þangað á Cadillac-bifreið glæpaforingjans. Þannig hjálpaði Davis frænda sínum að hefna grimmilega fyrir barsmíðarnar. Tveimur árum síðar lét Anderson sjálfur lífið í skotárás og mun því ekki svara til saka fyrir meintan glæp sinn.

Fyrr í sumar gerðu rannsóknarlögreglumenn í Las Vegas umfangsmikla húsleit hjá Davis þar sem leitað var að einhverjum sönnunargögnum sem gætu tengt glæpaforingjann við morðið. Þrátt fyrir að Davis hafi rætt málið opinskátt fer lögreglan í Las Vegas að öllu með gát og má búast við langvinnum réttarhöldum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Skilur núna af hverju hann hafi verið svona spenntur þegar hún greindi frá starfi sínu

Skilur núna af hverju hann hafi verið svona spenntur þegar hún greindi frá starfi sínu
Fókus
Í gær

Að deila forræði það erfiðasta við skilnað – „Af því að ég var ekki að eignast börn til þess að þurfa að deila þeim“

Að deila forræði það erfiðasta við skilnað – „Af því að ég var ekki að eignast börn til þess að þurfa að deila þeim“
FókusFréttir
Fyrir 2 dögum

Hafa eigendur Manchester City óeðlileg áhrif á dómgæslu ensku úrvalsdeildarinnar í krafti auðæfa sinna?

Hafa eigendur Manchester City óeðlileg áhrif á dómgæslu ensku úrvalsdeildarinnar í krafti auðæfa sinna?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrsta eiginkonan ekki par sátt með Bubba – „Vandræðalegt“

Fyrsta eiginkonan ekki par sátt með Bubba – „Vandræðalegt“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þau eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans

Þau eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gyllti piparsveinninn valdi, skellti sér á skeljarnar í beinni og ætlar að gifta sig án tafa – „Ég er 72 ára, tíminn tifar hratt“ 

Gyllti piparsveinninn valdi, skellti sér á skeljarnar í beinni og ætlar að gifta sig án tafa – „Ég er 72 ára, tíminn tifar hratt“