Tískuvikan í New York er komin vel af stað og að vanda er alls konar stíll í boði á tískupöllunum. Ákveðinn „lína„ vakti mikla athygli gesta fyrr í vikunni, en líklega ekki tískunnar vegna. Það var umboðsskrifstofan Creators Inc., sem er umboðsaðili fyrir samfélagsmiðlar, sem hélt opna tískusýningu þar sem fólk gat komið og kynnt fatalínur sínar. Þar til eitt módel, ungur karlmaður, gekk pallinn, klæddur í sturtuhettu, stuttbuxur og plastpoka, sem gat verið plastpoki eða regnponcho.
Tekið var á móti honum eins og öðrum módelum með miklum fagnaðarlátum og lófaklappi. Þegar módelið nálgaðist endann á tískupallinum má sjá öryggisvörð koma hlaupandi og grípa módelið. Svo virðist sem hér hafi verið um boðflennu að ræða, en ekki það heitasta úr heimi tískunnar.
An imposter wore a trash bag and did the catwalk at Fashion Week
Nobody in the crowd even noticed pic.twitter.com/L00b1VXU50
— End Wokeness (@EndWokeness) September 12, 2023
Myndbandinu var deilt á samfélagsmiðla og að vanda höfðu netverjar sitt að segja um atvikið.
„Þetta er ekki sorp heldur sorp,“ sagði einn þeirra. Annar sagði: „Ég sver að þessi tískufatnaður verður ruslmeiri með hverju ári.“ Sá þriðji viðurkenndi að hafa dáðst að módelinu: „Ég hugsaði að þetta væri bara ný tíska.“
Talið er að boðflennan YouTube prakkarinn Fred Beyer. Hann birtir margvísleg prakkarastrik á YouTube rás sinni, sem er með 300 þúsund áskrifendur. Beyer deildi skjáskoti úr myndbandinu á Instagram, en hefur ekki enn staðfest að hann hafi gengið tískupallinn.