fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Veröldin fór á hvolf þegar hún sá myndbandið af eiginmanninum og samstarfskonunni

Fókus
Sunnudaginn 28. maí 2023 21:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Eiginmaður minn gerði það sama og Matt Hancock og ég er með myndbandið til að sanna það.“

Svona hefst bréf konu til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun.

Matt Hancock er fyrrverandi heilbrigðisráðherra Bretlands. Hann sagði af sér eftir að myndir af honum og samstarfskonu hans kyssast fóru í dreifingu. En á þeim tíma var tveggja metra reglan í gildi vegna Covid heimsfaraldursins og hann hafi því virt hana af vettugi á sama tíma og hann bað landsmenn um að fylgja henni. Hancock var einnig giftur á þeim tíma.

„Mig hafði grunað í marga mánuði að eitthvað væri í gangi en hann er of snjall til að láta koma auðveldlega upp um sig,“ segir konan.

Hún er 37 ára og hann er 39 ára og starfar sem lögmaður. Þau eiga tvær dætur, 11 og 10 ára.

Skilaboðin sem breyttu öllu

Eitt kvöldið fékk hún skilaboð sem breyttu öllu. Í  þeim stóð: „Eiginmaður þinn, duglegur að vinna,“ og meðfylgjandi var myndband.

„Mér varð óglatt við að horfa á þetta myndband. Myndbandið var af honum nálgast konu sem stóð við skrifborð, hann kom aftan að henni og tók utan um brjóst hennar,“ segir hún.

„Hún sneri sér síðan við og ég kannaðist við hana, hún er einn af yngri lögmönnunum sem eiginmaður minn vinnur með. Hún stóð síðan upp og þau deildu ástríðufullum kossi. Það var enginn þarna og tímastimpillinn var 20:13 á miðvikudagskvöldi,“ segir hún.

„Ég hef örugglega horft á þetta myndband þúsund sinnum en mér verður ennþá jafn flökurt og þegar ég sá það fyrst,“ segir hún.

Hvað er svona sérstakt við hana?

Konan hefur verið í tómu tjóni síðan hún sá myndbandið og komst að svikum eiginmanns síns. Hún sýndi honum myndbandið en var ósátt við viðbrögð hans. „Hann virtist hafa meiri áhyggjur af því hver hafi sent mér myndbandið heldur en tilfinningum mínum,“ segir hún.

„En hann hefur síðan þá beðið mig endalaust afsökunar og sagt að athygli yngri konu hafi stigið honum til höfuðs. Hann vill að ég fyrirgefi honum en ég get ekki hætt að horfa á þetta myndband og spyrja hann út í þessa konu. Ég verð að vita hvað er svona sérstakt við hana?“

Deidre gefur ráð

„Eyddu myndbandinu. Það hjálpar þér ekki að horfa á það aftur og aftur. Eiginmaður þinn hélt framhjá, það er vandamálið sem þú stendur frammi fyrir. Það á ekki eftir að gera þér neitt gott að vita fleiri smáatriði. Hugsaðu frekar um hvort þú viljir reyna að láta hjónabandið ganga eða ekki,“ segir hún.

Hún mælir með pararáðgjöf ef þau vilja endurbyggja sambandið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“