Glæsileg íbúð í Reykjanesbæ er komin í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 84,4 fm eign í húsi sem byggt var árið 2021.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og góðar yfirbyggðar suður svalir sem eru 13,3, fm. og eru ekki inni í skráðum fermetrum.
Hiti er í gólfum, aukin lofthæð og innréttingar eru sérsmíðaðar frá Grindinni.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.