fbpx
Mánudagur 27.mars 2023
Fókus

Lögregla kölluð út á heimili Britney Spears eftir símtöl frá áhyggjufullum aðdáendum

Fókus
Fimmtudaginn 26. janúar 2023 11:20

Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðdáendur Britney Spears hafa áhyggjur af heilsu söngkonunnar eftir að hún eyddi út Instagram-reikningi sínum – enn einu sinni. 

Höfðu einhverjir samband við fógetaembættið í Ventura-sýslu, þar sem Britney dvelur, og greindu frá áhyggjum sínum og töldu tilefni fyrir lögreglu til að kanna aðstæður.

Talsmaður fógetaembættisins sagði þó í samtali við Page Six að engin ástæða væri til að hafa áhyggjur af Britney.

„Ég get staðfest að við fengum símtöl inn á stöðinna okkar og í grófum dráttum get ég staðfest að við teljum ekki að Britney Spears sé í hættu eða að hún hafi orðið fyrir skaða.“

Ekki staðfesti talsmaðurinn hvort lögregla hefði rætt við Britney eða farið að heimili hennar til að kanna aðstæður. Ekki væri hægt að svara frekari spurningum án þess að brotið væri gegn persónuvernd Britney.

TMZ greinir þó frá því að lögreglan hafi verið send að heimili Britney eftir að mörg símtal bárust embættinu frá áhyggjufullum aðdáendum. Lögreglumenn sem könnuðu aðstæður töldu þó ekkert benda til þess að söngkonan væri í hættu.

Britney var nýlega sögð hafa sýnt einkenni þess að vera í ójafnvægi þegar hún fór út að borða með eiginmanni sínum í Los Angeles. Gerðist þetta í kjölfar þess að aðrir gestir á veitingastaðnum tóku upp síma sína og fóru að taka myndir af söngkonunni, en hún hefur í gegnum tíðina farið óleynt með óbeit sína á því að myndir séu teknar af henni í heimildarleysi.

Rétt áður en hún eyddi Instagram-reikningi sínum sagðist hún hafa breytt nafni sínu og hún héti nú River Red.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Gátan um Cindy sem var ofsótt af eltihrelli í sjö ár og dó hræðilegum dauðdaga – En hvað var satt og hverju var logið?

Gátan um Cindy sem var ofsótt af eltihrelli í sjö ár og dó hræðilegum dauðdaga – En hvað var satt og hverju var logið?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Manst þú eftir konunni sem varð heimsfræg á einni nóttu árið 2020? – Þetta er hún að gera í dag

Manst þú eftir konunni sem varð heimsfræg á einni nóttu árið 2020? – Þetta er hún að gera í dag
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hljómsveitin er í raun saumaklúbbur sem vatt upp á sig“

„Hljómsveitin er í raun saumaklúbbur sem vatt upp á sig“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Keppandinn sem Katy Perry var sögð dónaleg við stígur fram – „Þetta var sárt“

Keppandinn sem Katy Perry var sögð dónaleg við stígur fram – „Þetta var sárt“