fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Birti ógeðsleg skilaboð sem hún fékk varðandi útlit hennar á rauða dreglinum

Fókus
Laugardaginn 21. janúar 2023 16:29

Christina Applegate mætti á Critics Choice verðlaunahátíðina. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Christina Applegate greindist með MS sjúkdóminn árið 2021. Eftir greininguna hélt hún sig að mestu frá sviðsljósinu og kom ekki fram opinberlega fyrr en í nóvember í fyrra, þegar hún hlaut stjörnu á hinni frægu götu Hollywood Walk of Fame.

„Til að vera alveg hreinskilin, þá að vera greind með MS í fyrra og hvað gerðist fyrir líkama minn, fyrir huga minn og anda, við allt saman, þá að sjálfsögðu langaði mig ekki að vera í kringum fólk eða tala um það,“ sagði hún við Kelly Clarkson í desember í fyrra.

Leikkonan mætti á Critics Choice verðlaunahátíðina fyrr í mánuðinum. Hún var tilnefnd til verðlauna fyrir leik sinn í vinsælu Netflix-þáttunum Dead To Me.

Christina á hátíðinni. Mynd/Getty

Hún gekk rauða dregilinn ásamt dóttur sinni og skemmti sér vel. En síðan gerði hún ein mistök, hún skoðaði athugasemdakerfi samfélagsmiðla.

Christina svaraði einum netverja og sagði að þetta væri ekki fallega sagt. Netverjinn svaraði henni til baka og sagði: „MS lætur þig ekki líta svona út. Lýtalæknir gerði það, og lélegur lýtalæknir í þokkabót.“

Christina lét þetta ekki slá sig út af laginu og hló að þessari fáránlegu athugasemd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki