fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Vítalía tjáir sig um mál bróður síns – „Ég hef alist upp við þessa fordóma í garð foreldra minna síðan ég man eftir mér“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 22. ágúst 2023 10:31

Vítalía og Kristján. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og áhugabakarinn Vítalía Lazareva opnar sig um mál bróður síns, Kristjáns Jakov Lazarev.

Kristján útskrifaðist úr grunnskóla í vor en byrjar ekki í framhaldsskóla í haust eins og jafnaldrar hans.

Vísir fjallaði um mál Kristjáns í gær. Móðir hans, Marina Lazareva, sagði að honum hafi verið synjað um pláss í tveimur skólum sem hefðu hentað honum, en Kristján er einhverfur, með þroskahömlun og mállaus. Hún sagði að mál Kristjáns sé búið að flakka á milli fólks í kerfinu en engin almennileg svör hafi borist.

Marina lýsti einnig slæmum samskiptum við Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, forstjóra Menntamálastofnunar.

„Þessi kona var ofboðslega pirruð og svaraði mér dónalega. Eins og hún sagði „Það er búið að bjóða ykkur margt, hvað viljið þið meira?“ Á maður að eiga von á svona svari eða talar hún svona við mig af því ég er útlensk? Svo spurði hún mig hvort ég væri með einhverja manneskju sem talað íslensku betur. Fyrirgefðu, ég skil fullkomlega hvað hún segir og hvað hún meinar,“ sagði Marina við Vísi.

Vítalía. M;ynd/Instagram

„Litli bróðir minn er hetjan mín“

Vítalía gagnrýnir framkomu Þórdísar og segir það sé ekkert nýtt fyrir hana að verða vitni að fordómum í garð foreldra sinna.

„[Móðir mín á ekki að þurfa að] tækla krefjandi aðstæður í lífi sínu með því að síendurtekið sé verið að reyna að lítillækka hana með því að kommenta á íslenskuna hennar. Ég hef alist upp við þessa fordóma í garð foreldra minna síðan ég man eftir mér,“ segir Vítalía í færslu á Instagram.

„Litli bróðir minn er hetjan mín og hann er sá sem gaf mér ný gildi í lífinu. Að alast upp með einstakling sem er fatlaður eru mín forréttindi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Læknar sögðu Anton Bjarka að hafa engar áhyggjur af góðkynja æxlinu – Fann fyrir reiði þegar það kom í ljós að það væri illkynja og ágengt

Læknar sögðu Anton Bjarka að hafa engar áhyggjur af góðkynja æxlinu – Fann fyrir reiði þegar það kom í ljós að það væri illkynja og ágengt
Fókus
Fyrir 2 dögum

Erna Hrönn tókst á við geranda sinn fyrir dómstólum og tapaði -Veit í hjarta sínu hvar skömmin á heima

Erna Hrönn tókst á við geranda sinn fyrir dómstólum og tapaði -Veit í hjarta sínu hvar skömmin á heima
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram
Fókus
Fyrir 3 dögum

Emmsjé Gauti auglýsir eftir ófrískum konum

Emmsjé Gauti auglýsir eftir ófrískum konum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?