fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Kristjana greindist með brjóstakrabbamein 33 ára – „Börnin eru í það minnsta hamingjusöm og það er það sem heldur okkur gangandi“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 6. júlí 2023 08:14

Kristjana, Atli Viðar og börn þeirra Mynd: Þórdís Reynisdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar læknirinn sagði mér að ég væri með krabbamein þá kom aldrei eitthvað sjokk og ég fór ekkert að gráta. Það var eiginlega bara eins og að hann væri að segja mér að það væri pizza í matinn,“ segir Kristjana Björk Traustadóttir sem greindist með brjóstakrabbamein í mars árið 2022 þá einungis 33 ára. Kristjana var þá nýbyrjuð að vinna eftir fæðingarorlof en húnhafði greinst með áráttu- og þráhyggjuröskun sem og þunglyndi og kvíða eftir barneignir. 

Kristjana og eiginmaður hennar, Atli Viðar Þorsteinsson, segja sögu sína í forsíðuviðtali tímarits Krafts, Laila Sæunn Pétursdóttir tók viðtalið og Þórdís Reynisdóttir forsíðumynd. DV fékk góðfúslegt leyfi hjónanna og Krafts til að deila viðtalinu áfram.

Krabbameinsgreiningin síðasta áfallið á erfiðu ári 

Krabbameinsgreiningin toppaði erfitt ár hjá hjónunum. Atli Viðar missti bróður sinn úr krabbameini í september í fyrra og rétt náði að kveðja hann fyrir andlátið, Atli Viðar sá síðar að Mannlíf hafði stolið og afskræmt minningargrein hans um bróður sinn, höfðaði mál og var fjölmiðilinn dæmdur til að greiða bætur. Í nóvember missti Atli Viðar síðan vinnuna, í mars eftir að hafa unnið í eigin sorgarferli hugðist hann leita sér að atvinnu en þá greindist Kristjana og ákváðu hjónin að nauðsynlegra væri að hann yrði heima næstu mánuðina. Allt þetta og fleira til hafði mikil áhrif á fjölskylduna, en hjónin vilja segja sögu sína þar sem þau telja að reynsla þeirra geti hjálpað öðrum. 

Sjá einnig: Atli Viðar og Árvakur lögðu Mannlíf vegna minningargreinaskrifa

Hjónin kynntust árið 2012 og giftu sig árið 2016 í húsi sem þau keyptu í Hveragerði þar sem fjölskyldan býr enn og vilja þau hvergi annars staðar vera. Hjónin eiga tvö ung börn og eru 22 mánuðir á milli barnanna. Kristjana hafði verið að glíma við brjóstasýkingu þegar hún var með börnin á brjósti, var mjög þreytt og fannst hún vera þreyttari en aðrar mæður í kringum hana og annað brjóstið á henni var aðeins öðruvísi í laginu en svo fór hún til læknis út af einhverju allt öðru og ákvað að spyrja hann út í þetta í leiðinni. 

„Ég bjóst bara við að hann myndi staðfesta sýkingu í brjósti. Hann sagðist vilja að ég færi í myndatöku á Domus, hefur greinilega fattað strax hvað þetta var. Svo gerðist þetta bara allt svo hratt. Ég fór til læknisins 16. mars og 30. mars fékk ég greininguna. Þegar ég fæ greininguna þá bara – BAMM – þarna kom skýringin. Það var búið að vera myndast krabbamein í líkamanum á mér og þess vegna var ég svona þreytt.“    

 Þarf ekki brjóst til að sinna daglegu lífi

Kristjana fór í sex sterkar lyfjagjafir og svo í skurðaðgerð þar sem hægra brjóstið var tekið. Hún ákvað að fara ekki í uppbyggingu á brjóstinu og finnst í raun skrýtið hvernig kerfið miðar að því að konur fari í uppbyggingu eftir brjóstnám. „Ég er núna búin að vera að fá lyf í æð á þriggja vikna fresti í heilt ár og kláraði síðustu lyfjagjöfina núna í lok apríl en verð á andhormónatöflum næstu 5-10 árin. Ég var heppin að æxlið hafði ekki dreift sér og var því skurðtækt, en í kjölfarið vildi ég alls ekki fá púða sem taldir eru vera krabbameinsvaldandi, eða færa fitu annars staðar af líkamanum til að fá brjóst með tilheyrandi inngripi. Það er ekki eins og líkaminn á mér sé ekki búinn að ganga í gegnum nægilega mikið og það er ekki eins og ég þurfi brjóst til að sinna mínu daglega lífi.“  

Þegar Kristjana greindist stofnuðu systur hennar reikning sem vinir og vandamenn lögðu inn á og segja þau þá aðstoð hafa verið ómetanlega og fleytt þeim gegnum fyrstu mánuðina. Atli Viðar sem er plötusnúður gat einbeitt sér að því starfi, þar sem samkomutakmörkunum var aflétt í mars í fyrra. Einnig fengu þau peninga frá tryggingum og mælir Kristjana eindregið með sjúkdómatryggingu.  „Ég var alveg viss um að það kæmi eitthvað svona ákvæði í smáa letrinu að akkúrat þessi tegund af krabbameini væri ekki tryggð. Þegar peningurinn kom svo inn á bankareikninginn þorði ég ekki að hreyfa við honum fyrst um sinn því ég var viss um að þau myndu taka hann aftur af okkur,“ segir Kristjana.

Aðspurð um hvernig ástandið kom við börnin segja hjónin að þau hafi reynt að láta ástandið hafa sem minnst áhrif á þau en vera samt eins heiðarleg og unnt er við dóttur sína um krabbameinið, en með tilliti til aldurs hennar. Sonur þeirra hefur meðtekið minna af því sem hefur verið að gerast, enda einungis eins og hálfs árs þegar ferlið hófst. „Við leyfðum henni að sjá lyfjabrunninn og töluðum um krabbameinið við hana en þegar hún spurði til dæmis úr hverju bróðir pabba dó þá sögðum við henni ekki að það hefði verið krabbamein. Við vildum ekki að hún myndi ekki tengja krabbameinið þannig,“ segir Kristjana.  

Kristjana, Atli Viðar og börn þeirra
Mynd: Þórdís Reynisdóttir

Hefðu þegið meiri aðstoð með börnin 

Hjónin eru þakklát fyrir alla aðstoð sem þau hafa fengið, en eru sammála um að það hefði verið vel þegið að fá aðeins meiri aðstoð með börnin. Þau viti að fólk vill hjálpa, en yfirleitt veit fólk ekki hvernig það á að bjóða fram aðstoð, auk þess sem hver og einn eigi nóg með sitt.

„Fyrri helming lyfjameðferðarinnar fannst mér alveg ómögulegt að gera þetta með tvö lítil börn en þegar fór að líða að lokum og ég alveg búin á því fór ég að sjá fegurðina í því. Þegar ég var örmagna á líkama og sál og fannst ég ekki geta meir, fékk ég styrk til að halda áfram vegna þeirra. Atli þurfti að vera mikið með börnin en ég var hreinlega eins og einhver skuggi þarna með þeim. Eins og einhver aukahlutur. Við erum mjög þakklát fyrir alla þá hjálp sem við fengum en eftir þessa reynslu hvet ég þau sem eru með krabbameinssjúkling í sínum innsta hring að bjóðast til að hjálpa til með börnin. Bara koma og sækja þau og ekki láta aðstandandann eða sjúklinginn um skipulagninguna. Það er alltaf erfitt að biðja um aðstoð.“  

Kristjana er mikil handavinnukona og segir handavinnuna hafa hjálpað sér mikið í lyfjameðferðinni og endurhæfingunni. Eftir greininguna stofnaði hún Litlu Brjóstabúðina og heldur úti Instagramminu litla_brjostabudin en þar er einungis að finna brjóst. 

„Strax við greiningu byrjaði ég að fara til sálfræðinga, iðjuþjálfa, fá stuðning hjá Krabbameinsfélaginu, Krafti og Ljósinu. Ég var mjög fegin að hafa kynnt mér þá hjálp sem er í boði áður en lyfjameðferðin sjálf byrjaði. Ég fékk líka Lyfjakortið hjá Krafti sem er algjör snilld. Endurhæfingin er langt ferli, hingað til hef ég einbeitt mér meira að andlegu hliðinni en finnst ég núna tilbúin til að byrja að einbeita mér meira að líkamanum. Ég er að passa mig að fara samt ekki of hratt af stað. Það er ekki bara krabbameinið, heldur líka barneignirnar og allt sem þeim fylgdi, álagið sem pakkast saman yfir fimm ára tímabil hefur bara verið of mikið.“

Dugleg að upplýsa sína nánustu 

Hjónin segjast hafa verið dugleg að upplýsa vini og vandamenn um stöðuna, þau stofnuðu Facebook-síðu fyrir sína nánustu og segja það hafa hjálpað til við að þurfa ekki að svara sömu spurningum oft og að tryggja að allir væru upplýstir um stöðu mála. Kristjana skrifaði mikið um ferlið á Instagram. „Það hjálpaði mér líka mikið að segja hlutina upphátt á samfélagsmiðlum og hjálpaði mér að hjálpa öðrum og um leið að hjálpa mér að koma þessu út.“  

Að sama skapi var Atli Viðar duglegur að tala við vini sína á hreinskilinn máta, halda engu inni og segja hlutina eins og þeir voru á hverjum tíma. „Ég tvítaði rosalega mikið á þessu tímabili en hélt Twitter að mestu sem “cancer free zone”, ég tvítaði ekkert um krabbameinið fyrr en við sáum fyrir endann á því. Ég vildi hafa stað þar sem ég gat látið eins og krabbameinið væri ekki til,“ segir Atli. 

Aðspurð um hvað hafi hjálpað þeim mest í gegnum ferlið svara þau að það hafi verið að sýna hvert öðru skilning og stuðning. Þau hafi öðlast dýpri tengsl eftir allt sem þau hafa þurft að upplifa.

„Þegar ég var algjörlega niðri þá tók hann boltana og þegar ég hafði orku þá tók ég þá. En stundum erum við algjörlega buguð bæði en þá lítum við á hvert annað og hlæjum nett og segjum þá jafnan – börnin eru í það minnsta hamingjusöm – og það er það sem heldur okkur gangandi. Börnin höfðu af mér mikla orku en á sama tíma gáfu þau mér styrk.“ 

Viðtalið við hjónin má lesa í heild sinni í tímariti Krafts.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram
Fókus
Fyrir 2 dögum

Selena Gomez trúlofuð

Selena Gomez trúlofuð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gefur Bríet falleinkunn fyrir tónleika – „Stundum var líkt og söngkonan syngi í gegnum nefið“

Gefur Bríet falleinkunn fyrir tónleika – „Stundum var líkt og söngkonan syngi í gegnum nefið“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Megan Fox sá eitthvað óviðeigandi í síma MGK og hætti með honum – Er ítalska kyntröllið nýi kærastinn?

Megan Fox sá eitthvað óviðeigandi í síma MGK og hætti með honum – Er ítalska kyntröllið nýi kærastinn?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sagan af Kóngsa geimfara er ný barnabók eftir Laufeyju Arnardóttur

Sagan af Kóngsa geimfara er ný barnabók eftir Laufeyju Arnardóttur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“