Svo gæti farið að Netflix-þættirnir vinsælu Black Mirror snúi aftur á skjáinn fljótlega, fjórum árum eftir að síðasti þátturinn í fimmtu seríu fór í loftið sumarið 2019.
Í júlí í fyrra var tilkynnt að þættirnir myndu snúa aftur en nákvæm tímasetning lá ekki fyrir – og raunar hefur lítið frést af nýju seríunni síðan þá.
Opinber Twitter-reikningur þáttanna hefur verið þögull síðustu ár en í gær birtist fyrsta færslan þar frá árinu 2019. „What have we missed?“ stóð einfaldlega í stuttri færslunni og var það nóg til að vekja upp spennu hjá aðdáendum þáttanna.
what have we missed?
— Black Mirror (@blackmirror) April 25, 2023
Black Mirror-þættirnir hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi en eins og aðdáendur þekkja er hver þáttur sjálfstæð saga. Taka þættirnir meðal annars á lífi okkar í nútímasamfélagi þar sem þar sem tæknin hefur áhrif á allt sem við gerum.
Netflix eignaðist útgáfuréttinn af þáttunum árið 2015 og hafa aðdáendur jafnan þurft að bíða nokkuð lengi á milli þáttaraða.
Fyrsta þáttaröðin var sýnd 2011, svo 2013, 2016, 2017 og 2019. Sérstakur aukaþáttur var gefinn út í desember 2014 og í desember 2018 kom svo út einskonar gagnvirkur þáttur, eða kvikmynd, þar sem áhorfendur fengu að hafa áhrif á gjörðir aðalsögupersónunnar.
Tiltölulega fáir þættir hafa verið í hverri seríu, eða 3-6 að jafnaði, en í frétt Independent í dag kemur fram að aðdáendur geti vænst þess að enn fleiri þættir verði í sjöttu og nýjustu seríunni sem er vonandi væntanleg fljótlega.